Björgvin Magnússon farinn heim

Björgvin Magnússon farinn heim
Vinur okkar og skátabróðir, Björgvin Magnússon lést s.l. nótt 98 ára að aldri. Björgvin var öllum kær og hann hafði áhrif á okkur öll. Með Björgvin er genginn góður skáti sem ávallt og alls staðar dreifði gæsku og góðum straumum. Margs er að minnast en einkum nefnum við hér störf hans að Úlfljótsvatni allt frá árinu 1947 og málefnum Gilwellsþjálfunar á Íslandi. Björgvin lauk Gilwellþjálfun sinni í Gilwell Park 1948 og var einn aðal leiðbeinanda við fyrsta Gilwellnámskeiðið á Úlfljótsvatni 1959 og síðan stjórnandi fjölmargra slíkra í áratugi. Björgvin gerðist ungur skáti í Skátafélaginu Völsungum sem starfaði í tengslum við Laugarnesskólann í Reykjavík. Þegar Völsungar sameinuðust Skátafélagi Reykjavíkur starfaði Björgvin þar og sat m.a. í stjórn félagsins. Einnig starfaði hann um tíma sem félagsforingi Skjöldunga. Fyrir störf sín var Björgvin Magnússon sæmdur æðsta heiðursmerki íslensku skátahreyfingarinnar, Silfurúlfinum árið 1992 og riddarakrossi hinnar íslensku Fálkaorðu árið 2008 af forseta Íslands.
Í samráði við fjölskyldu Björgvins safnar BÍS minningarstyrkjum til heiðurs Björgvini sem mun renna óskipt til Gilwellskálans á Úlfljótsvatni. Áhugasöm geta fundið allar upplýsingar með því að smella hér.
Katrín ný verkefnastýra fræðslumála
Katrín ný verkefnastýra fræðslumála

Í haust var Katrín Kemp Stefánsdóttir ráðin til starfa til að sinna fræðslu og leiðtogaþjálfunar málum fyrir Bandalag íslenskra skáta.
Katrín hefur starfað innan skátahreyfingarinnar í 10 ár að fjölbreyttum verkefnum m.a sem aðstoðarfélagsforingi skátafélagsins Kópa undanfarin ár og sem sjálfboðaliði í leiðtogaþjálfunarteymi Gilwell skólans. Hún er með B.A. gráðu í uppeldis og menntunarfræði og er að klára masternám í sömu fræðum samhliða starfinu. Katrín hefur verið Útilífsskólastjóri nokkur sumur hjá skátafélaginu Kópum og starfað í leik- og grunnskólum.
Sem verkefnastýra fræðslumála BÍS hefur Katrín yfirumsjón með fræðsluefni, námskeiðaframboði og þjálfunum á vegum BÍS. Katrín vinnur að markmiðum BÍS um Skátaskólann og er í nánu samstarfi við sjálfboðaliðana sem mynda stjórn skólans. Hún vinnur mun líka hjálpa að móta og styðja leiðbeinendasveit BÍS sem ætlað er að sinna skipulagi og framkvæmd námskeiða með dyggum stuðningi hennar.
Það er okkur mikil ánægja að hafa fengið Katrínu til starfa!
Forskráning á Alheimsmót 2023 í Kóreu opin
07/12/2021Fréttirwsj23,Alheimsmót
Forskráning á Alheimsmót 2023 í Kóreu opin!

Alheimsmót skáta í Suður-Kóreu er alþjóðlegt mót sem fer fram 1.-12. ágúst 2023 fyrir ungmenni fædd frá 22. júlí 2005 til 31. júlí 2009, en eldri skátar eiga möguleika á að fara sem starfsmenn mótsins, foringjar þátttakenda eða sem meðlimir fararstjórnar.
Ef þú hefur brennandi áhuga á að koma með á alheimsmótið 2023 í einhverju af þessum hlutverkum er forskráning núna opin án nokkurrar skuldbindingar um endanlega þátttöku. Þau sem eru forskráð munu reglulega fá upplýsingar um leið og þær liggja fyrir.
Forskráning á: skraning.skatarnir.is
Guðjón Rúnar Sveinsson og Hrafnhildur Ýr Hafsteinsdóttir fararstjórar á Alheimsmót
07/12/2021Tilkynningarwsj23,Alheimsmót
Guðjón Rúnar Sveinsson og Hrafnhildur Ýr Hafsteinsdóttir fararstjórar á Alheimsmót

Þau Guðjón Rúnar Sveinsson og Hrafnhildur Ýr Hafsteinsdóttir munu leiða fararhóp Bandalags íslenskra skáta á Alheimsmót skáta í Suður-Kóreu 2023. Þau vinna nú að ljúka allri helstu áætlanagerð svo hægt verði að opna skráningu sem allra fyrst!
Alheimsmót skáta í Suður-Kóreu er alþjóðlegt mót sem fer fram 1.-12. ágúst 2023 fyrir ungmenni fædd frá 22. júlí 2005 til 31. júlí 2009, en eldri skátar eiga möguleika á að fara sem starfsmenn mótsins, foringjar þátttakenda eða sem meðlimir fararstjórnar.
Ef þú hefur brennandi áhuga á að koma með á alheimsmótið 2023 í einhverju af þessum hlutverkum er forskráning núna opin án nokkurrar skuldbindingar um endanlega þátttöku. Þau sem eru forskráð munu reglulega fá upplýsingar um leið og þær liggja fyrir.
Rita ný kynningarmálastýra
Rita ný kynningarmálastýra

Í haust var Rita Osório ráðin til starfa til að sinna kynningar og ímyndarmálum fyrir Bandalag íslenskra skáta og dótturfélög þess.
Rita hefur starfað sem skáti í Portúgal frá því áður en hún man eftir sér, hún útskrifaðist með BSc í „Technologies of multimedia communications“ frá School of Media Arts and Design í Porto í Portúgal. Hún starfaði sem sjálfboðaliði við samskiptamál í aðlþjóðlegu skátamiðstöðinni í Kandersteg árin 2018 – 2020 og kom síðan til Íslands í apríl 2021 og gerðist tímabundinn sjálfboðaliði hjá Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni. Þar tók hún meðal annars að sér margmiðlun og ímyndarmál og sinnti þeim með glæsibrag!
Rita mun vinna að kynningar- og öðru útgefnu efni fyrir skátana, sinna samfélagsmiðlum og heimasíðum skátanna og dótturfélaga ásamt átaksverkefnum tengd upplýsingamálum í samstarfi við skátafélög. Það er okkur mikil ánægja að hafa fengið Ritu til starfa!
Pani nýr framkvæmdastjóri útilífsmiðstöðvar skáta Úlfljótsvatni
Pani nýr framkvæmdastjóri útilífsmiðstöðvar skáta Úlfljótsvatni

Bandalag íslenskra skáta hefur ráðið til starfa Javier Paniagua Petisco, gjarnan kallaður Pani, til þess að gegna stöðu framkvæmdastjóra Útilífsmiðstöðvar skáta við Úlfljótsvatn.
Pani hefur langa og ríkulega reynslu af skátastarfi bæði á Spáni, heimalandi sínu sem og við alþjóðlegu skátamiðstöðina Kandersteg í Svissnesku Ölpunum hvar hann starfaði fyrst sem sjálfboðaliði og síðar sem starfsmaður. Pani hefur starfað sem sem dagskrárstjóri á Úlfljótsvatni síðan í upphafi árs 2020 við góðan orðstír.
Það er mikill fengur fyrir skátana að Pani sé tilbúinn til að leggja allt sitt til Draumlandsins okkar allra við Úlfljótsvatn þar sem skátar, nemendur og allir aðrir gestir fá að njóta alþjóðlegs umhverfis í gamalgrónu umhverfi staðarins. Þar að auki mun Pani gegna starfi verkefna- og leiðtogaþjálfa fyrir BÍS og m.a. starfa náið með leiðbeinendasveitinni.
Megi Pani ganga sem allra best í nýrri stöðu; Heill, gæfa gengi! Pani er með netfangið pani@skatar.is og hefur mikinn áhuga á að heyra frá skátum á öllum aldri af öllu landinu.
Netnámskeið í barnavernd nú aðgengilegt á ensku
Netnámskeið í barnavernd nú aðgengilegt á ensku

Frá lok árs 2019 hefur Æskulýðsvettvangurinn haldið úti netnámskeiði í barnavernd fyrir starfsfólk og sjálfboðaliða í íþrótta- og æskulýðsstarfi sem samtökin þróuðu ásamt sérfræðingum í málaflokknum. Á þeim tveimur árum sem námskeiðið hefur verið aðgengilegt hefur fjöldi fólks, eða nokkur hundruð einstaklingar á ári, tekið námskeiðið.
Það er okkur sönn ánægja að greina frá því að námskeiðið er nú einnig aðgengilegt á ensku. Að því tilefni er rétt að minna á að siðareglur Æskulýðsvettvangsins eru einnig aðgengilegar á ensku.
Það er mikilvægt fyrir öll sem starfa með börnum og ungmennum að vera meðvituð um skyldur sínar og ábyrgð. Markmiðið með námskeiðinu er að auka þekkingu starfsfólks og sjálfboðaliða um land allt á einelti, ofbeldi og áreitni sem börn og ungmenni geta orðið fyrir og mögulegum afleiðingunum af því. Tilgangurinn er að reyna að koma í veg fyrir að slíkt komi upp í íþrótta- og æskulýðsstarfi og gera börnum og ungmennum auðveldara með að fá úrlausn slíkra mála þegar þau koma upp.
Námskeiðið er ókeypis og við hvetjum sem flest til þess að nýta sér námskeiðið og þá þekkingu sem þar er að finna í sínu starfi og stuðla með því að vönduðu, uppbyggilegu og öruggu starfi með börnum og ungmennum!
Netnámskeið má nálgast á ensku hér
Netnámskeið má nálgast á íslensku hér
Siðareglur má nálgast á ensku hér
Siðareglur má nálgast á íslensku hér
Fálkaskátadeginum frestað
Fálkaskátadeginum frestað

Það er verulega leitt að tilkynna að sú ákvörðun hefur verið tekin að fresta fálkaskátadeginum 2021. Ákvörðunin var tekin bæði af BÍS sem ábyrgist viðburðinn og skátafélaginu Garðbúum sem átti að vera gestgjafi fálkaskátadagsins í ár. Þeim sem standa viðburðinum þykir ekki ábyrgt að stefna saman hópum barna og fullorðinna úr ólíkum hverfum og bæjarfélögum við núverandi stöðu.
Skátafélag hefur þurft að afboða komu sína og allra sinna þátttakenda vegna stöðunnar í þeirra nærsamfélagi og á sama tíma er fjöldinn allur af ungum þátttakendum sem voru spennt fyrir að koma sem þyrfti að biðja um að koma ekki sökum þess að þau eru í smitgát. Tilgangur fálkaskátadagsins er að leyfa krökkum úr ólíkum skátafélögum að hittast og hafa gaman saman og aðstæður núna eru ekki heppilegar til að ná þeim markmiðum.
Þess verður freistað að reyna aftur síðar og ný dagsetning viðburðarins er sunnudagurinn 13. febrúar og er gert ráð fyrir að fálkaskátadagurinn fari fram með sama hætti, á sama stað og með sömu gestgjöfum. Skráning er því framlengd og þau sem eru skráð halda sínu sæti. .
Við minnum alla skátana okkar á að muna að vera ávallt viðbúin sérstaklega núna þegar á reynir!
Ungmennaráð heimsmarkmiðanna
Ungmennaráð heimsmarkmiðanna
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í ungmennaráð heimsmarkmiðanna til næstu 2 ára.
Hlutverk ungmennaráðs heimsmarkmiðanna er að vinna með málefni tengd heimsmarkmiðunum og sjálfbærri þróun, og vinna að því að koma sjónarmiðum barna á framfæri. Þetta er eina ungmennaráðið sem starfar innan stjórnsýslunnar og gefur það sínar ráðleggingar til ráðuneyta og ýmissa stofnanna eftir óskum. Einnig hefur ráðið greiðan aðgang að ráðuneytunum til að koma sínum málefnum á framfæri og funda til að mynda árlega með ríkisstjórn.
Ungmennaráðið heldur á lofti ákvæðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, þá sér í lagi hvað varðar áhrif barna á ákvarðanatöku og rétt þeirra til að láta í ljós skoðanir sínar.
Í ungmennaráðinu sitja tólf börn og skulu þau vera 13-18 ára á meðan á skipunartímabilinu stendur. Öll börnin í ráðinu skulu því vera fædd á árunum 2006-2009. Leitast er eftir því að hafa fjölbreyttan hóp barna í ráðinu, þá sér í lagi með tilliti til kynjahlutfalls og búsetu en áhersla hefur verið lögð á að vera með fulltrúa úr öllum landshlutum. Ráðið heldur að meðaltali einn netfund í mánuði, og hittist í persónu á lengri fundum 3-4 sinnum yfir árið.
Umsóknir fara fram á vef stjórnarráðsins og er umsóknarfrestur til og með 15. nóvember

Tilmæli um viðburði
Tilmæli um viðburði
Til Skátamiðstöðvarinnar hafa leitað skátafélög sem höfðu í einhvern tíma stefnt á að vera með viðburði um komandi helgi 29.-31. október. Skátafélög hafa verið að spyrja starfsfólk Skátamiðstöðvar hvað BÍS ráðleggi þeim að gera í ljósi ástandsins og í ljósi þess að sóttvarnarlæknir sagði í fjölmiðlum í dag, 28. október, að aðilar sem stefndu á stóra viðburði um helgina ættu að endurskoða það.
Þegar skýrar leiðbeiningar hafa ekki borist okkur frá yfirvöldum eða okkar ráðuneyti í formi reglugerðar er erfitt að setja boð eða bönn og vera viss um að þau séu rétt. Skátamiðstöðin leitaði til covid.is eftir ráðgjöf en þar var vísað til 2000 manna samkomutakmarkanna sem væru nú í gildi.
Skátamiðstöðin ráðleggur því öllum skátafélögum að fara varlega og hugsa sig vel um. Í slíku mati gæti verið gott að hugsa hvort hópurinn sem myndi mætast á viðburðinum sé þegar að blandast í skólastarfi eða ekki. Ef viðburðir eru skipulagðir skal fyrst kanna hug meðal sjálfboðaliða, þátttakenda og forráðafólks til að meta hvort það sé áhugi á að viðburðum sé haldið til streitu. Ef viðburðir eru haldnir leggjum við til að gætt sé upp á sóttvarnir meðan að á þeim stendur byggt á þeirri reynslu sem við eigum öll að hafa eftir tæp tvö ár af þessu ástandi.
Við höfum fengið fregnir af því að í öðru ungmennastarfi sé verið að gera það að kröfu að öll sem hyggist mæta á viðburði um helgina fari í hraðpróf 48 klst fyrir komu, en slík má t.d. bóka á hradprof.covid.is.
Ef skátafélögin eru óörugg og vilja heldur fresta eða aflýsa viðburðum sem þau höfðu skipulagt hvetjum við þau til að vera óhrædd að gera það og útskýra fyrir sínum skátum og forráðafólki þeirra að það sé gert í öryggisskyni og að skátafélagið treysti sér ekki til annars.
Við hvetjum fólk að vera skynsamt og fylgja samvisku sinni. En einnig að muna að skáti er tilitssamur.


