Views Navigation

Viðburður Views Navigation

Today

Rúllukúlu skátastríð

Keiluhöllin Fossaleynir 1, Reykjavík

Ungmennaráð ætlar að halda keilumót fyrir drótt, rekka- og róverskáta. Viðburðurinn er haldin þriðjudaginn 11. júní kl. 19 í Keiluhöllinni Egilshöll. Mæting er 10 mínútum fyrir svo hægt sé að byrja tímanlega. Þátttökuverðið er 5.000 kr, og er innifalið pizzusneiðar […]

5000kr

Landsmót 2024

Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni, Grafningsvegur efri, Selfoss, Iceland

Landsmót skáta snýr aftur Eftir nokkur ár er loksins komið að því að við sameinumst aftur á skátamóti, hittum vini og fjölskyldu og eignumst nýja skátavini á Landsmóti skáta á Úlfljótsvatni vikuna 12.-19. júlí 2024. Hægt er að sjá frekari […]

83000kr

Roverway 2024

Stavanger , Norway

Skráningafresti lokið
Roverway er einn af vinsælustu viðburðum fyrir rekka- og róverskáta og taka um 5000 þátttakendur þátt hverju sinni. Þetta er tilvalið tækifæri til að eignast nýja skátavini eða jafnvel endurnýja kynnin við skáta frá Jamboree eða öðrum alþjóðlegum mótum. Roverway verður haldið í Stavanger, Noregi, dagana 22. júlí – 1. ágúst 2024.

Euro Mini Jam 2024

Gíbraltar

Skráningafresti lokið
Smáþjóðaleikar skáta er sjö daga skátamót einungis fyrir þjóðir sem eru með færri en milljón íbúa. Mótið verður haldið í Gíbraltar 28. júlí – 3. ágúst 2024

KVEIKJA 2024 – STJÓRNARMEÐLIMIR

Skátaheimili Garðbúa Hólmgarður 34, Reykjavík

Viðburðurinn á að kveikja neista hjá okkur fyrir komandi starfsár, skapa rými fyrir umræður um hlutverk okkar og annað sem að gagni kemur í vetur. Fræðsla verður um stuðning sem BÍS veitir, námskeið, stuðningsefni og viðburði sem standa skátafélögum til boða.

4500kr

KVEIKJA 2024 – FORINGJAR

Skátaheimili Garðbúa Hólmgarður 34, Reykjavík

Viðburðurinn á að kveikja neista hjá okkur fyrir komandi starfsár, skapa rými fyrir umræður um hlutverk okkar og annað sem að gagni kemur í vetur. Fræðsla verður um stuðning sem BÍS veitir, námskeið, stuðningsefni og viðburði sem standa skátafélögum til boða.

4500kr

Upphaf – Vetraráskorun CREAN 2025

Skátamiðstöðin Hraunbær 123, Reykjavík, Reykjavík, Iceland

Vetraráskorunin CREAN hefst með fræðslukvöldi 29. ágúst þar sem farið er yfir vegferðina sem liggur framundan, áskorunina, leiðarbókina og markmiðin. Þetta kvöld er einungis fyrir þau sem eru skráð í áskorunina. Um vetraráskorun Crean: Verkefnið er samstarfsverkefni BÍS og Scouting […]

Frítt

Verndum þau – Námskeiðaáætlun ÆV

Skátamiðstöðin Hraunbær 123, Reykjavík, Reykjavík, Iceland

Skráningarfrestur til 4. september
Það er mikilvægt fyrir alla þá sem starfa með börnum og unglingum að vera meðvitaðir um skyldur sínar og ábyrgð, að geta lesið í vísbendingar um að vanræksla eða ofbeldi, hvort sem það er andlegt, líkamlegt eða kynferðislegt, eigi sér stað og vita hvernig bregðast á við ef slík mál skjóta upp kollinum.

Frítt

Foringjanámskeið 2024

Lækjabotnar Lækjarbotnaland 33, Kópavogur

Skráningarfrestur rennur út 1. september
Námskeiðið er ætlað starfandi skátaforingjum 16 ára og eldri og er ætlast til þess að foringjar sæki námskeiðið á fyrsta starfsári sínu.
Námskeiðið er sameiginlegt fyrir sveitar- og aðstoðarsveitarforingja.

21000kr

Ungt fólk og lýðræði 2024

Reykir Reykir, Hrútafirði, Iceland

Skráningarfrestur er 11. september
Ungmennaráð UMFÍ stendur fyrir ungmennaráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði dagana 20. - 22. september á Reykjum í Hrútafirði.
Yfirskrift ráðstefnunnar er: UNGT FÓLK OG LÝÐHEILSA

15000kr