Verkefni 19 – Alheimsmót á internetinu

Alheimsmót skáta í loftinu og á internetinu, eða JOTA/JOTI eins og það er skammstafað á ensku, er skátamót sem haldið er á alþjóðavísu á hverju ári þriðju helgina í október. Þar gefst skátum allstaðar að úr heiminum tækifæri til þess að kynnast og gera ýmislegt saman gegnum veraldarvefinn eða með fjarskiptabúnaði. Mótið er á vegum WOSM, heimssamtaka skáta.

Í ljósi heimsfaraldurs hefur verið ákveðið að boða til sérstaks alheimsmóts skáta á internetinu helgina 3.-5. apríl. Á meðan mótið stendur yfir gefst skátum 13 ára og eldri tækifæri til að taka þátt í allskyns dagskrá í þema hinna ólíku dagskrárþorpa sem mynda hið rafræna mótsvæði. Á meðal rafrænna dagskrárþorpa verður mannúðarmiðstöð, útvarpsstöð, leikjastöð, rafrænt greni heimsborgarans, tjaldsvæði skátaforingjans og svið fyrir hæfileikakeppni mótsins. Áhersla í allri dagskrá mótsins verður andleg líðan og hvað við getum gert sem skátar á tímum COVID-19.

joti tjaldsvæði

Til að taka þátt þarf að gera eftirfarandi:

  1. Segja foreldrum/forráðamönnum frá því sem þú ætlar að gera á netinu
  2. Búa til aðgang inn á scout.org
  3. Taka námskeið í netöryggi sem þú finnur inn á heimasíðunni þeirra
  4. Finna ykkur verkefni sem þið hafið áhuga á og kynnast fullt af nýjum skátum út um allan heim!

Skemmtið ykkur vel!