- Þessi event er liðinn
Ungmennaþing 2022
Um viðburðinn:
Þingið verður haldið rafrænt sunnudaginn 6. febrúar á forritinu Gather. Mæting í Gather er klukkan 10:00 og setning verður klukkan 10:15, slit verða síðan samdægurs klukkan 21:00. Þinggestum verður boðið í opna dagskrá í Gather forritinu í lok þings. Þingið er fyrir skáta 25 ára og yngri og þátttökukostnaður er 750 krónur. Að ákvörðun ungmennaráðs skulu þátttakendur á dreka- og fálkaskátaaldri sem vilja taka þátt gera það með því að taka zoom símtal eða svipað við sveitarforingjann sinn sem mætir á viðburðinn í gather og sveitarforinginn deilir skjánum sínum.
Ungmennaþing er samkvæmt 16. grein laga BÍS og er athygli vakin á að fundarboð þetta er ekki með 6 vikna fyrirvara líkt og lagagreinin kveður á um. Vegna óvissu að sökum heimsfaraldurs þurfti að endurskipuleggja viðburðinn og undirbúa rafrænt og var ákveðið að fresta fundarboði fyrr en það væri fastar í hendi. Við biðjum um að athugasemdir við þetta séu gerðar við Skátamiðstöð en frávik frá þessum reglum um fundarboðun verður rædd og lögð til samþykktar líkt og góð fundarsköp gera ráð fyrir.
Samkvæmt 17. grein laga BÍS er slétt ártal kosningaár og þá skal á ungmennaþingi kjósa a.m.k. þrjá fulltrúa í ungmennaráð og sérstakan áheyrnafulltrúa ungmenna í stjórn BÍS þ.e. ungmenni sem hefur áheyrnarrétt í stjórn BÍS en ekki atkvæði. Aðeins eru kjörgengir skátar sem eru 25 ára eða yngri.
Tillögur um fólk í þessi störf óskast sendar uppstillingarnefnd hið fyrsta. Tilkynningar um framboð má senda á uppstilling@skatar.is
Framboðsfrestur er þó ekki takmarkaður og hægt verður að skila framboðum á þinginu sjálfu.
Uppstillingarnefnd skipa:
Berglind Lilja Björnsdóttir berglindliljab@gmail.com 659-1366
Birgir Ómarsson biggiomars@gmail.com 895-7551
Katrín Kemp Stefánsdóttir katrinkemp@kopar.is 824-1865
Sigurður Viktor Úlfarsson siggiulfars@gmail.com 854-0074
Sædís Ósk Helgadóttir saedis@skatar.is 661-6433
Skráning á ungmennaþing fer fram á https://skraning. og skulu þátttakendur hafa skráð sig eigi síðar en 4. febrúar 2022. Opnað hefur verið fyrir skráningu. Rétt er að ítreka það að ALLIR skátar sem hyggjast taka þátt í þinginu skulu skrá þátttöku sína.
10:00 Mæting í Gather
10:15 Setning og kynning á dagskrá (kynning á skemmtipakkanum)
10:30 Kynningarleikur (2 satt, 1 logið)
10:55 Fundarboðun rædd og lögð til samþykktar af þátttakendum þingsins
11:005 Örkennslur
11:30 Skipting á örkennslum
12:00 Hádegismatur
13:00 Kynning á viðburðum
13:20 Hvernig hefurðu áhrif (hvernig þingstörfin virka, hvað er skátaþing o.fl. í þeim dúr)
14:30 Stfna BÍS a.k.a. Stebbi – Kynning
14:45 Sameiginleg lummugerð A.K.A kaffitími
—————————– ÞINGSTÖRF HEFJAST 15:45 ————————————-
15:45 Ungmennaþing 101
16:00 Kjósa fundarstjóra
16:05 Þingstörf
17:15 Pása
17:30 Þingstörf
—————————– ÞINGSTÖRFUM LOKIÐ 18:40 ————————————-
18:40 Buffer
19:00 Kvöldmatur
20:00 Opin dagskrá (umræðuhópar, tölvuspil, árshátíð)
21:00 Slit
21:15 Allir farnir heim
00:00 Gather lokar
Þingstörf
16:00 Ungmennaþing – aðalfundarstörf
Kosning fundarstjóra og fundarritara
Fundarboðun ungmennaþings rædd og lögð til samþykktar
Tillaga að dagskrá Ungmennaþings – umræður – afgreiðsla
Þingsályktanir – framsaga – umræður
Lagabreytingar – framsaga – umræður
Afgreiðsla þingsályktana og lagabreytinga
Kosið í nýtt ungmennaráð
Áheyrnarfulltrúi ungmenna stjórnar BÍS kosin
Önnur mál
Klst
Min
Sek
Lykilupplýsingar
- Dagsetning:
- 06/02/2022
- Tími
-
10:00 - 21:00
- Kostnaður:
- 750kr.
- Aldurshópar:
- Dróttskátar, Rekkaskátar, Róverskátar
Staðsetning
- Á netinu
Skipuleggjandi
- Ungmennaráð BÍS
- Netfang:
- ungmennarad@skatarnir.is
- Vefsíða:
- View Skipuleggjandi Website