Hleð Viðburðir
  • Þessi event er liðinn

RekkaKraftur

Um viðburðinn:

Takið fram skikkjurnar! Helgina 11.-13. apríl verður Rekkakraftur haldinn og þemað er ofurhetjur. Krafturinn verður haldinn í Skátafelli í Skorradal. Á viðburðinum munu þátttakendur finna sína innri ofurhetju og finna ofurkröftunum sínum farveg í samfélagsverkefnum sem unnið verður að á námskeiðinu. Á þessu námskeiði fá rekkaskátar tækifæri til að styrkja sig í sínu skátastarfi og verða meðvitaðari um hutverk skátastarfs í samfélaginu. Rekkakraftur er tækifæri fyrir rekkaskáta til að koma saman upplifa skemmtilega samveru og læra eitthvað nýtt og skemmtilegt.

Athugið! Þátttakendur koma sér sjálf á staðinn. Mæting er klukkan 20:00 á föstudagskvöldi og slit eru klukkan 14:00 á sunnudegi. Gert er ráð fyrir því að þátttakendur hafi borðað kvöldmat á föstudeginum. 

VERÐ OG SKRÁNING

Skráning er opin á Abler og henni lýkur mánudaginn 7. apríl.

Verð fyrir helgina er 21.000 krónur, innifalið í verðinu er gisting, matur á meðan viðburði stendur og dagskrá.

SKILMÁLAR

​Með því að skrá skáta á Rekkakraft samþykkir þú eftirfarandi skilmála:

  1. Þátttakendur sem skrá sig á 0 krónur skuldbinda sig til að greiða fullt gjald ef í ljós kemur að félag hyggst ekki greiða fyrir þau.
  2.  Staðfestingargjaldið er 10% af námskeiðsgjaldi og er það óafturkræft.
  3. Þátttakendur eru ekki sérstaklega slysatryggðir, ábyrgðartryggðir eða vátryggðir að öðru leyti af Bandalag íslenskra skáta (BÍS) í skátastarfi, bent er á að þessar tryggingar eru oft hluti af heimilis- og fjölskyldutryggingum og öðrum almannatryggingum forráðafólks.
  4. Meðferð persónugreinanlegra upplýsinga sem skráðar eru vegna þátttöku er í samræmi við samþykkta persónuverndarstefnu BÍS sem finna má hér (https://skatarnir.is/personuverndarstefna/).
  5. Bandalag íslenskra skáta áskilur sér rétt til að halda eftir hluta af gjaldi þátttakandi greiðir sem hér segir:
    Ef hætt er við þátttöku 1 mánuði fyrir viðburð er staðfestingargjaldi haldið eftir.
    Ef skátinn hættir við þátttöku 3 vikum fyrir viðburð, er 50% af gjaldi haldið eftir.
    Ef skátinn hættir við þátttöku 14 dögum fyrir viðburð, er 75% af gjaldi haldið eftir.
    Ef skátinn hættir við þátttöku þegar skemmra er til viðburðar en sem nemur 14 dögum verður endurgreiðsla engin.
  6. BÍS eða umsjónaraðili á þess vegum getur þurft að aflýsa viðburðum og mótum vegna gildra og óviðráðanlegra aðstæðna s.s. vegna náttúruhamfara, hryðjuverka, stríðs, heimsfaraldra o.fl. Við þessar aðstæður áskilur BÍS sér rétt til þess að endurgreiða ekki mótsgjaldið, þótt ávallt sé leitast eftir að hámarka endurgreiðslu til þátttakenda.​

Auk ofangreindra skilmála gilda almennir skilmálar BÍS, sem má lesa hér.

Staðsetning viðburðar á korti

-14

Dagur

-21

Klst

-28

Min

-40

Sek

Lykilupplýsingar

Byrjar:
11. apríl
Endar:
13. apríl
Kostnaður:
21000kr
Aldurshópar:
Rekkaskátar

Skipuleggjandi

Leiðbeinendasveitin
Sími:
5509800
Netfang:
leidbeinendasveit@skatarnir.is
Vefsíða:
View Skipuleggjandi Website

Staðsetning

Skátafell
311 Iceland + Google Map
Vefsíða:
View Staðsetning Website

BANDALAG ÍSLENSKRA SKÁTA


Hraunbær 123,110 Reykjavík (sjá á korti)Sími: 550 9800Netfang: skatarnir@skatarnir.is 

OPNUNARTÍMI SKRIFSTOFU

Mánudaga – fimmtudaga: 09:00 – 16:00Föstudaga: 09:00 – 13:00

SAMFÉLAGSMIÐLAR


 

Privacy Preference Center