Fyrsta helgin í Gilwell leiðtogaþjálfuninni árið 2025 verður haldin helgina 17.-19. janúar!
Gilwell er tilvalið tækifæri fyrir skáta, 20 ára og eldri, að upplifa 10 daga skátaævintýri sem inniheldur leiðtogaþjálfun og uppbyggingu einstaklingsins.
Á Gilwell fá þátttakendur að efla og öðlast nýja færni í ólíkum hlutverkum innan skátahreyfingarinnar sem mun einnig koma að góðum notum í þeirra daglega lífi.
Gilwell leiðtogaþjálfunin tekur ár en er skipt upp í þrjár lotur. Í þjálfuninni velja þátttakendur sér verkefni sem þau vilja vinna að og hefur það gjarnan verið nýtt í umbótaverkefni innan skátafélaganna.
1. hluti – Skátinn
Í fyrsta hluta er athyglinni beint að skátanum sjálfum og unnið með sjálfseflingu, framkomu og gildum einstaklings í og utan skátastarfs
28. maí – 1. júní 2025.
Í öðrum hluta er flokkastarf í forgrunni. Á þessu skrefi munu flokkarnir reisa tjaldbúð sem þeir búa og starfa í með sínum flokki og glíma við ögrandi verkefni sem miða að því að efla hópinn og auka færni í útivist og tjaldbúðalífi.
7. – 9. nóvember 2025.
Í þriðja hlutanum vinnum við með leiðtogafræðin og hæfni hvers og eins.
FORKRÖFUR
Þátttakendur þurfa að senda kynningarbréf á netfangið gilwell@skatarnir.is áður fyrir 10. janúar 2025. Í kynningarbréfinu þarf að koma fram kynning á þér, hvaða verkefnum þú hefur sinnt fyrir skátahreyfinguna og hvaða væntingar þú hefur til Gilwell leiðtogaþjálfunarinnar.
VERÐ OG SKRÁNING
Verð fyrir Gilwell leiðtogaþjálfunina er 125.000 krónur og lýkur skráningu 13. janúar.
Þau sem borga sjálf eru beðin um að haka líka við ‘borga sjálf’ valmöguleikann og áskilur Skátamiðstöðin sér rétt á að setja skáta í greiðsluferli sem skrá sig á 0 krónum en félög hyggjast ekki greiða fyrir.
Með því að skrá þig á Gilwell samþykkir þú eftirfarandi skilmála:
Auk ofangreindra skilmála gilda almennir skilmálar BÍS, sem má lesa hér.