Skólastjóri Útilífsskóla Ægisbúa (Vesturbærinn)
Viltu framleiða ævintýri?
Skólastjóri Útilífsskóla Ægisbúa – sumarstarf
Skátafélagið Ægisbúar óskar eftir því að ráða sumarstarfsmann til að sinna starfi skólastjóra yfir Útilífsskóla Ægisbúa, sem eru námskeið fyrir 8-12 ára börn, þar sem þátttakendur stunda útivist, kynnast öðrum krökkum og vinna skemmtileg verkefni í anda skátastarfs.
Helstu verkefni:
- Umsjón sumarnámskeiða
- Stýra dagskrárgerð
- Samskipti við foreldra
- Verkstjórn leiðbeinenda
- Skráningar og utanumhald
Hæfniskröfur:
- Æskilegt er að skólastjóri hafi náð 20 ára aldri.
- Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Metnaður, frumkvæði og hugmyndaauðgi.
- Reynsla af stjórnun og/mannaforráðum er kostur.
- Reynsla af skátastarfi eða öðru æskulýðsstarfi er mikill kostur.
Frekari upplýsingar veitir Tryggvi Bragason, félagsforingi Ægisbúa á tryggvi4@gmail.com, 856-1861.
Umsóknir skulu berast á skati@skati.is. Umsóknarfrestur er til 15. apríl 2020.