Skólastjóri Útilífsskóla Hamars (Grafarvogur)
Viltu framleiða ævintýri?
Skólastjóri Útilífsskóla Hamars – sumarstarf
Skátafélagið Hamar óskar eftir því að ráða sumarstarfsmann til að sinna starfi skólastjóra yfir Útilífsskóla Hamars, sem eru námskeið fyrir 8-12 ára börn, þar sem þátttakendur stunda útivist, kynnast öðrum krökkum og vinna skemmtileg verkefni í anda skátastarfs.
Helstu verkefni:
- Umsjón sumarnámskeiða
- Stýra dagskrárgerð
- Samskipti við foreldra
- Verkstjórn leiðbeinenda
- Skráningar og utanumhald
Hæfniskröfur:
- Æskilegt er að skólastjóri hafi náð 20 ára aldri.
- Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Metnaður, frumkvæði og hugmyndaauðgi.
- Reynsla af stjórnun og/mannaforráðum er kostur.
- Reynsla af skátastarfi eða öðru æskulýðsstarfi er mikill kostur.
Frekari upplýsingar veitir Sól Gísladóttir, starfsmaður Hamars á soldisg@gmail.com, 6919595.
Umsóknir skulu berast á skfhamar@simnet.is. Umsóknarfrestur er til 20. apríl 2020.