Tíðindi frá félagsforingjafund
Haustfundur félagsforingja BÍS var haldinn í Hraunbæ 123 4. október síðastliðinn.
Þar var farið yfir stöðu mála á skrifstofunni, rætt um samning skátanna við Sportabler, farið yfir niðurstöður ánægjukönnunar BÍS, ný viðbragðsáætlun Æskulýðsvetvangsins var kynnt, og skipun mótsstjóra landsmóts skáta 2024 var tilkynnt.
Af starfsmannamálum skrifstofunnar var það helst að Helga Þórey Júlíudóttir framkvæmdastjóri BÍS hefur látið af störfum og mun Harpa Ósk skátahöfðingi stíga tímabundið í stöðu hennar meðan á ráðningarferli stendur. Auglýst verður eftir nýjum framkvæmdastjóra fljótlega. Önnur starfsmannamál skrifstofunnar haldast óbreytt. Helstu verkefni skrifstofunnar voru kynnt en framundan eru spennandi tímar þar sem endurgerður starfsgrunnur BÍS mun brátt líta dagsins ljós og síðustu mánuði hefur leiðbeinendasveitin hafið námskeiðahald fyrir ungmenni innan skátahreyfingarinnar. Þátttaka í nýju námskeiðunum hefur verið mjög góð.
Rætt var um þann samning sem BÍS hefur með skráningar- og miðilskerfinu Sportabler. Núna er sá prufusamningur sem BÍS gerði við skráningarfyrirtækið að renna út og breytast í hefðbundinn samning. Mun sú breyting hafa í för með sér mánaðarlegan kostnað og ræddir voru möguleikar þess að félögin muni þurfa að greiða árgjald til að bera kostnað af sínum hluta samningsins. Umræða félags- og aðstoðarfélagsforingja um Sportabler var jákvæð, og lýsti fólk yfir ánægju með kerfið í samanburði við fyrra skráningarkerfi. Einnig var lýst yfir ánægju með leiðbeiningar fyrir skráningarkerfið sem erindrekar BÍS hafa útbúið og dreift til félaganna.
Send var út ánægjukönnun á þátttakendur skátastarfs í vor. Þar var forráðafólk beðið um að svara spurningum um upplifun barna sinna í starfinu. Niðurstöður könnunarinnar voru kynntar á fundinum og var þar helst minnst á ánægju forráðafólks með útivist og gildi skátastarfs í lífi barna sinna. Forráðafólk óskaði eftir meiri útivist, fleiri útilegum, og að upplýsingar um starfið bærist bæði í gegnum Sportabler og með tölvupósti.
Ný viðbragðsáætlun Æskulýðsvettvangsins verður birt 8. nóvember og fengu félagsforingjar stutta kynningu á efnistökum. Skátar hafa lengi starfað eftir viðbragðsáætlun ÆV og hafa lagt mikið af mörkum við uppfærslu þeirrar nýju.
Kolbrún Ósk Pétursdóttir hefur verið skipuð mótsstjóri Landsmóts skáta 2024. Mótið verður haldið á Úlfljótsvatni 12-19.júlí 2024. Kolbrún Ósk hefur strax hafist handa við að búa til mótsstjórn og munu nánari upplýsinga vera að vænta fljótlega.
Fleiri en 200 íslenskir skátar tóku þátt í JOTA-JOTI 2022

Alþjóðlega skátamótið JOTA-JOTI fór fram helgina 14.-16. október, skammstöfunin stendur á ensku fyrir alheimsmót skáta í loftinu og alheimsmót skáta á internetinu. Á milli 2 og 3 miljónir skáta um allan heim tóku þátt í mótinu. Íslenskir skátar um land allt tóku líka þátt í viðburðinum en skátar frá Akranesi, Akureyri, Búðardal, Reykjavík og Hafnarfirði voru á meðal þátttakenda.

Það eru ýmsar leiðir færar til að taka þátt í mótinu en skátar geta bæði tekið þátt sem einstaklingar eða tekið þátt í mótinu í stærri hópum. Mótið fer fram á rafrænu mótsvæði sem skiptist upp í dagskrártorg þar sem hvert torg er með ólíka áherslu. Innan hvers torgs er síðan fjölbreytt og spennandi dagskrá yfir helgina þar sem þátttakendur geta tengst skátum um allan heim ýmist á zoom fundum, í tölvuleikjum eða bara með að fást við verkefni í raunheimum á sama tíma og þúsundir annarra.

Flestir íslenskra skáta tóku þátt með sínu skátafélagi en félögin fóru ólíkar leiðir til að taka þátt. Skátafélögin Landnemar og Hraunbúar voru í félagsútilegu umrædda helgi á Úlfljótsvatni og í Lækjabotnum og nýttu mótið fyrir dagskrá í útilegunni hjá sér, þau fengu líka aðstoð radíóskáta sem mættu til þeirra og hjálpuðu þeim að taka þátt í þeim hluta mótsins sem fór fram í loftinu gegnum talstöðvar og annan fjarskiptabúnað. Skátafélag Akraness, Klakkur og Stígandi voru héldu viðburð í sinni heimabyggð vegna tilefnisins þar sem áhugasamir skátar gátu komið að taka þátt í mótinu með sínum skátaforingjum og gist á meðan að á viðburðinum stóð. Árbúar hittust síðan í skátaheimilinu til að taka þátt saman í mótinu meðan sum í hópnum voru heima en tengd við restina af hópnum gegnum sameiginlega spjallrás. Garðbúar skráðu síðan hóp til þátttöku og auglýstu til sinna skáta og foringja sem tóku síðan þátt sitt í hvoru lagi. Þá tóku á milli 10 og 20 íslenskir skátar líka þátt í mótinu án þess að vera í stærri hóp.
Í heildina tóku því fleiri en 200 skátar þátt í mótinu og var skiptingin eftirfarandi samkvæmt skrá mótsins:
Skátafélagið Árbúar - 7 skátar
Dróttskátsveitin Oríón, skátafélagi Akraness - 14 skátar
Radíóskátar - 7 skátar
Skátafélagið Stígandi - 10 skátar
Skátafélagið Klakkur - 14 manns
Skátafélagið Garðbúar - 20 skátar
Skátafélagið Landnemar - 50 skátar
Skátafélagið Hraunbúar - 74 skátar


