Verkefni 17 - Búðu til þitt eigið spil
Verkefni 17 – Búðu til þitt eigið spil
Að spila er skemmtileg iðja fyrir alla fjölskylduna til að gera saman. Þið eruð mögulega búin að spila öll spilin sem þið eigið til heima og langar að prófa eitthvað nýtt. Hvernig væri þá að búa til spil? Það er ekki eins erfitt og það hljómar og þið getið leyft ímyndunaraflinu að ráða för!
Hér eru hugmyndir af þremur spilum sem þið getið prófað. Þegar spilið er tilbúið er hægt að bjóða fjölskyldunni upp á skemmtilegt spilakvöld. Hvernig væri að kíkja aftur á verkefni 9 áður en þið byrjið að spila 😉
Völundarhús
Það sem þú þarft:
- Morgunkornskassa eða annan sambærilegan kassa
- Skæri
- Penna
- Límband
- Legókubba, rör, prjóna eða annað sambærilegt til að búa til veggi
- Lítinn bolta
Aðferð:
- Byrjaðu á því að klippa af eina hlið (framan eða aftan) af kassanum svo þú sérð inn í hann
- Gott er að líma hliðarnar svo þær opnast ekki
- Teiknaðu völundarhús inn í kassann sem þú vilt að boltinn fylgi
- Síðan klippiru gat í eitt hornið sem er endastöðin
- Til þess að gera brautina erfiðari er hægt að klippa fleiri göt sem boltinn getur dottið í gegnum
- Svo getur þú límt legó, prjónum, rörum eða sambærilegu til að búa til veggi
- Svo skoraru á alla í fjölskyldunni til að prófa!




Trivia
Það sem þú þarft:
- Blöð
- Skæri
- Penna
Aðferð:
- Taktu eitt blað og teiknaðu á það nokkra kassa. Þú getur verið með raðirnar 3×3, 4×4 og fyrir lengra komna er hægt að vera með 5×5
- Taktu annað blað og klipptu í kassa sem eru jafn stórir og kassarnir sem þú teiknaðir á fyrsta blaðið. Legðu svo kassana ofan á fyrsta blaðið
- Veldu þema fyrir spilið þitt, eitthvað sem þér finnst skemmtilegt. Sem dæmi getur þú verið með Disney þema, Harry Potter, skátafélög, sundlaugar á Íslandi eða bara það sem þér dettur í hug!
- Ef þú velur sem dæmi dýr þá skrifar þú dýr á alla kassana. Svo skrifar þú vísbendingu um annað dýr á spilaborðinu og færð þau sem eru að spila með þér til að giska á hvaða dýr það gæti verið
- Svo er bara að skora á fjölskylduna þína til að giska á alla reitina
- Þú getur líka prófað að hringja í vin í gegnum netið og leyft þeim að spreyta sig á spilinu!
Spilaborð
Það sem þú þarft :
- Blað
- Liti + blýanta/penna
- Spilakalla (getur verið hvað sem er, gaman að hver leitar að einhverju til að vera sinn kall)
- Tening eða pening
Aðferð:
- Byrjaðu á að velja þema. Það getur verið geimurinn, neðansjávar, skátaútilega. Hvað sem þér dettur í hug
- Hugsaðu hvernig form spilaborðið á að vera. Viltu búa til hring, zik-zak eða kannski kassa?
- Svo veluru hvað á að vera á reitunum. Þú getur sett upp gildrur, áskoranir, spurningar. Notaðu ímyndunaraflið þitt og skapaðu skemmtilegt spilaborð!
Hugmyndir af reitum:
- Einn áfram
- Tvo áfram
- Einn aftur á bak
- Tveir aftur á bak
- Stoppustöð (bíða eina umferð) (getur tengt þennan reit þemanu, bilað geimskip/berjast við geimverur, óreimaðir gönguskór, laus dreki, batterí búin í leikfangi, ofvaxið illgresi)
- Verkefni (hægt er að útbúa bunka af verkefnum til að draga úr):
- Segja brandara
- Stanslaust tal í mínútu
- Búa um rúmið
- Taka úr uppþvottavélinni
- Búa til hnút
- Leysa hnút
- Raða útiskónum
- Gera grettu
- Gera Daðadansinn
- Syngja uppáhalds lagið þitt
- Gera 3-5 armbeygjur
- Standa á höndum (má vera upp við vegg)
- Skæri, blað, steinn við leikfélaga
- Halda bolta á lofti




ALHEIMSMÓT SKÁTA Á INTERNETINU
ALHEIMSMÓT Á INTERNETINU BOÐAÐ Í LJÓSI ÁSTANDSINS
Í ljósi heimsfaraldurs hefur verið ákveðið að boða til sérstaks alheimsmóts skáta á internetinu helgina 3.-5. apríl en mótið er fyrir alla skáta í heiminum. Allir skátar 13 ára eða eldri geta tekið þátt á mótinu sjálf en ætlast er til þess að skátar yngri en 13 ára taki þátt undir eftirliti foreldra. Alheimsmót skáta í loftinu og á internetinu, eða JOTA/JOTI eins og það er skammstafað á ensku, er skátamót sem haldið er á alþjóðavísu á hverju ári þriðju helgina í október. Þar gefst skátum allstaðar að úr heiminum tækifæri til þess að kynnast og gera ýmislegt saman gegnum veraldarvefinn eða með fjarskiptabúnaði. Mótið er á vegum WOSM, heimssamtaka skáta en í ljósi ástandsins ákváðu samtökin að boða nú til sérstaks aukamót um næstu helgi.
DAGSKRÁ, ÞÁTTTAKENDUR OG MÓTSVÆÐ HÝST Á NETINU
Alheimsmótið mun fara fram á heimasíðu mótsins, jotajoti.info, en þar hýsir mótið rafrænt mótsvæði fyrir mótið. Á meðan mótið stendur yfir geta skátar á öllum aldri tekið þátt í allskyns dagskrá í þema hinna ólíku dagskrárþorpa sem mynda hið rafræna mótsvæði. Áhersla í allri dagskrá mótsins verður andleg líðan og hvað við getum gert sem skátar á tímum COVID-19.

HVERNIG TEK ÉG ÞÁTT?
Til þess að taka þátt í mótinu þarf fyrst að búa til aðgang á scout.org og taka síðan þátt í netnámskeiði um öryggi á internetinu, þessum skrefum er hægt er að ljúka þessum tveimur skrefum áður en að mótið hefst. Þegar mótið hefst skrá þátttakendur sig síðan inn á mótið með þessum sama aðgangi.

ALDURSVIÐMIÐ MÓTSINS
Alheimsmót skáta á internetinu er fjölbreytt mót sem stendur öllum aldurshópum til boða en er þó fyrst og fremst hugsað fyrir skáta 13 ára og eldri. Þau sem eru 18 ára og eldri skrá sig til þátttöku og hegða sér í samræmi við reglur mótsins og skátalög. Þau sem eru á milli 13 og 18 ára í aldri ber að láta forráðamann vita af þátttöku sinni og kynna umgjörð mótsins fyrir þeim, þau geta síðan tekið þátt í mótinu án frekari aðkomu fullorðinna og heita því að fylgja reglum mótsins og skátalögum. Þau sem eru yngri en 13 ára geta tekið þátt en ætlast er til þess að þau geri það undir eftirliti forráðamanns.
NÁNAR UM DAGSKRÁNA
Dagskrá mótsins skiptist eftir þema dagskrárþorpa rafræna mótsvæðisins.
- Spjallsvæði mótsins (e. JOTI Chat) er vinsælasta þorpið á hverju ári, þar geta skátar hvaðanæva úr heiminum talað saman í gegnum ScoutLink forritið en þar er hægt að finna umræðuhópa út frá tungumáli sem viðkomandi talar eða út frá umræðuefni sem viðkomandi langar að ræða.
- Leikjasvæði mótsins (e. Fun Zone) mun bjóða þátttakendum að tengjast saman gegnum ólíka miðla til að fara saman í leiki, kenna dansa, fara í allskyns keppnir og jafnvel spila saman tölvuleiki
- Hæfileikakeppni mótsins (e. Youth Got Talent Stage) er rafrænt svæði þar sem þátttakendur geta skoðað myndbönd af skátum að leika allskyns listir sínar og gefið þeim atkvæði sitt. Þá geta þátttakendur sjálf lagt sína hæfileika í púkk á slóðinni tribute.co/joti/
- Griðarstaður heilsu og vellíðan (e. Health and Wellbeing Oasis) mun halda úti dagskrá, fræðslu, samkomum og umræðum tengdum því hvernig við hugum að líkamlegri og andlegri heilsu okkar, fjölskyldna okkar, vina okkar og samfélags á þessum skrítnu tímum.
- Mannúðar miðstöðin (e. Humanitarian Hub) mun safna saman hugmyndum og lykilupplýsingum um hvernig megi tryggja öryggi með bestum máta og reyna að miðla skilning á ólíkum áhrifum COVID-19 víða um heim og hvernig við getum öll hjálpast að við þær áskoranir að heiman.
- Bæli rafrænna heimsborgara (e. Digital Citizenship Den) verður samkomustaður þeirra sem nota internetið til að leiða til góðra áhrifa í heiminum. Þar geta þátttakendur bæði fræðst af öðrum og miðlað af eigin reynslu til annarra.
- Tjaldsvæði skátaforingjans (e. Leader's Camp) mun afla og miðla út upplýsingum og stuðningsefni til að skátaforingjar geti haldið sínum skátum virkum en þó öruggum í skátastarfi á þessum krefjandi tímum.
- Hlaðvarp mótsins (e. JOTI Radio) mun varpa út þáttum, viðtölum, tónlist og fræðslu, áhersla verður lögð á efni tent andlegri líðan
- Streymisveita mótsins (e. JOTI live) mun vera með beint streymi af viðtölum við skáta um allan heim sem deila góðum fréttum og sögum tengt núverandi ástandi. Einnig verður völdum hlutum streymt frá öðrum dagskrárþorpum s.s. frá mannúðar miðstöðinni og griðarstað heilsu og vellíðan.
TAKTU ÞÁTT
Við hvetjum alla til þess að fylgjast vel með framvindu mótsins og taka þátt í því. Engar kröfur eru gerðar um það að fólk sé skátar að fyrra bragði og ekki þarf að vera með frá upphafi til enda. Hver sem er getur slegist í hópinn hvenær sem er svo lengi sem þau fylgja reglum mótsins og hegða sér í samræmi við alþjóða bræðralag og friðarhugsjón skátahreyfingarinnar á heimsvísu.






