
Ungmennaráð Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) stendur fyrir ungmennaráðstefnunni Ungt fólk og lýðheilsu dagana 12. – 14. september á Reykjum í Hrútafirði.
Yfirskrift ráðstefnunnar er: Félagslegir töfrar. Töfrarnir vísa til mikilvægra en ósýnilegra gilda sem myndast í samskiptum og samveru fólks. Þeir móta hugmyndir, hegðun og sjálfsmynd fólks. Draga fólk hvert að öðru, gerir hóp að liði og samfélag að samfélagi.
Eins og nafnið gefur til kynna er ráðstefnan fyrir allt ungt fólk á aldrinum 15 – 25 ára.
Ekki þarf að vera í ungmennaráði eða ákveðnu félagi til þess að koma.
ALLAR HLIÐAR LÝÐHEILSU
Ráðstefnan hefur það markmið að hvetja ungt fólk til þátttöku í félagsstarfi íþróttaog ungmennafélagshreyfingarinnar. Þátttaka getur falið í sér að sitja í stjórn deildar eða félags, taka þátt í fjölbreyttu nefndarstarfi, aðstoða við fjáröflun, dómgæslu og/eða koma að móta- og viðburðahaldi. Með öðrum orðum er markmið viðburðarins að efla og viðhalda félagslegum töfrum ungs fólks – efla og styrkja félagslega heilsu þess. Að auki felur viðburðurinn í sér hellings hópefli, líkamlega hreyfingu og afþreyingu. Viðburðurinn tekur því á öllum hliðum lýðheilsu, þ.e. líkamlegri-, andlegri- og félagslegri heilsu.
FJÖLBREYTT DAGSKRÁ
Dagskráin verður eins og alltaf með fjölbreyttu sniði. Boðið er upp á hópefli og samveru, áhugaverðan fróðleik og uppörvandi og hvetjandi vinnustofur. Fólk úr stjórnmálum, íþrótta- og atvinnulífi mætir á ráðstefnuna og fá þátttakendur tækifæri til að byggja upp tengslanet til framtíðar. Sjá meðfylgjandi dagskrá.
TAKMARKAÐUR FJÖLDI
Fjöldi þátttakenda er takmarkaður og því borgar sig ekki að bíða of lengi með skráningu. Æskilegt er að fullorðinn einstaklingur og/eða starfsmaður ungmennaráðs/félagasamtaka fylgi þátttakendum yngri en 18 ára. Viðburðurinn gefur starfsfólki ekki síður tækifæri en þátttakendum til þess að kynnast, bera saman starf og verkefni eftir landssvæðum og félagasamtökum.
Þátttökugjald er 15.000 kr. fyrir hvern þátttakanda. Innifalið er gisting í tvær nætur, 2x kvöldmatur, 2x morgunmatur, 2x hádegismatur og 2x hressing. Ráðstefnugögn og ferðakostnaður að mestu og/eða öllu leiti. Rúta fer frá þjónustumiðstöð UMFÍ í Reykjavík á föstudeginum og til baka á sunnudeginum sem þátttakendur eru hvattir til þess að nýta sér. Ferðatilhögun frá Akureyri og Egilsstöðum fer eftir fjölda skráninga og er því í vinnslu. Við hvetjum því þátttakendur að bíða ekki of lengi með að skrá sig svo hægt sé að staðfesta og ganga frá öllum ferðatilhögunum í tíma.
SKRÁNING
Skráning er í fullum gangi og stendur til í síðasta lagi til 8. september, eða þar til uppselt verður.
Allar upplýsingar um ráðstefnuna og skráningarhlekk má finna hér á heimasíðu umfi.is. Athygli er vakin á því að viðburðurinn er vímuefnalaus, það sama á við um rafsígarettur og nikótínpúða.
Ráðstefnan er styrkt af Erasmus+.
Fyrir nánari upplýsingar er hægt að hafa samband við Ragnheiði, starfsmann
Ungmennaráðs UMFÍ. Netfang ragnheidur@umfi.is eða Höllu Margréti, formann
Ungmennaráðs UMFÍ. Netfang: hallamargret99@gmail.com.