Ungmennaþing verður haldið þann 2. – 4. febrúar á Akranesi í skátaheimili Skátafélagsins Akraness, Háholt 24. Ungmennaþingið hefst með setningu kl. 21:30 á föstudegi og lýkur með slitum kl. 13:00 á sunnudegi.
Skráning er opin á skraning.skatarnir.is og verðið er 15.900 kr fyrir viðburðinn en gert er ráð fyrir að matur, dagskrá og gisting sé innifalin í verðinu. Þá er átt við kvöldkaffi á föstudaginn, allan mat á laugardag og mat á sunnudag fram að brottför.
Ekki verður boðið upp á rútuferð, haft verður samband við þau sem voru skráð í rútu og búin að greiða varðandi endurgreiðslu.
Ákveðið hefur verið að fjölga sætum í ungmennaráði úr þremur í fimm eins og heimild er til skv. 26. grein laga BÍS og því fimm sæti til kjörs í ungmennaráði. Skátar sem bjóða sig fram í ungmennaráð skulu vera á aldrinum 13-25 ára á því ári sem þau bjóða sig fram auk þess að kosið verður um sérstakan áheyrnafulltrúa ungmenna í stjórn BÍS og kjörgengir eru þeir skátar sem eru 25 ára eða yngri á því ári sem kosið er skv. 16. grein laga BÍS.
Framboðstilkynningar og tillögur um einstaklinga í ungmennaráð skulu sendar á uppstillingarnefnd fram að föstudegi 19. janúar í gegnum tölvupóstinn uppstillingarnefnd@skatarnir.is en uppstillingarnefnd starfar skv. 19. grein laga BÍS.
Framboð mega þó berast fram að kosningum sjálfum á Ungmennaþingi skv. 16. grein laga BÍS.
Uppstillinganefnd:
Höfuðborgarsvæðið 2023-12-19