Ungmennaþing skátanna verður haldið í Grundarfirði 7.-9. febrúar .
Markmið helgarinnar er að kynnast fyrirkomulagi Skátaþings, ræða þau málefni sem skipta ungmenni í skátastarfi máli og svo auðvitað að kynnast nýju fólki og eiga frábæra helgi saman.
Þingið er opið fyrir elsta árið í dróttskátum, alla rekkaskáta og róverskáta
Skráning er hafin á skatar.felog.is
Gróf dagskrá fyrir helgina er hér að neðan.
Föstudagskvöld: Mæting, koma sér fyrir & ratleikur um Grundarfjörð.
Laugardagur: Kynning á BÍS, Skátaþingi og fl. Þingstörf, póstaleikur og skemmtidagskrá um kvöldið.
Sunnudagur: Tiltekt, endurmat, leikir og heimferð.