Hleð Viðburðir
  • Þessi event er liðinn

Verndum þau

Um viðburðinn:

Verndum þau námskeið

6. febrúar 2020 kl. 17 – 20

Félagsheimili KFUM og KFUK, Hátún 26, Keflavík

Það er mikilvægt fyrir alla þá sem starfa með börnum og ungmennum að vera meðvitaðir um skyldur sínar og ábyrgð, að geta lesið í vísbendingar um að vanræksla eða ofbeldi, hvort sem það er andlegt, líkamlegt eða kynferðislegt, eigi sér stað og vita hvernig bregðast á við ef slík mál koma upp.

Æskulýðsvettvangurinn hefur frá árinu 2010 staðið fyrir námskeiðinu Verndum þau fyrir þau félagasamtök sem saman mynda vettvanginn og aðra áhugasama. Námskeiðið er byggt á efni samnefndrar bókar og fjallar um hvernig bregðast á við grun um ofbeldi og vanrækslu gegn börnum og ungmennum

Á námskeiðinu er m.a farið yfir:

Tilkynningaskyldu starfsmanna sem vinna með börnum og unglingum.
Líkamlegt, andlegt og kynferðislegt ofbeldi og vanrækslu hvers konar.
Hvernig taka skuli á móti ofbeldisfrásögn.
Reglur í samskiptum við börn og ungmenni.
Ýmis atriði sem gott er fyrir vinnuveitendur að hafa í huga.
Úrræði sem í boði eru í samfélaginu fyrir börn og ungmenni sem eru þolendur ofbeldis.

Höfundar bókarinnar, Ólöf Ásta Farestveit, uppeldis- og afbrotafræðingur og Þorbjörg Sveinsdóttir, sálfræðingur, sjá um kennslu á námskeiðinu. Báðar starfa þær í Barnahúsi og hafa mikla reynslu af barnaverndarmálum.

Næsta námskeið fyrir þau félagasamtök sem saman mynda Æskulýðsvettvanginn fer fram þann 6. febrúar 2020. Námskeiðið fer fram í félagsheimili KFUM og KFUK að Hátúni 36, Keflavík. Námskeiðið hefst kl. 17 og stendur til kl. 20. Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Klst

Min

Sek

Lykilupplýsingar

Dagsetning:
06/02/2020
Tími
17:00 - 20:00
Aldurshópar:
Róverskátar, Eldri skátar