Skyndihjálparnámskeið í umsjón hinnar þaulreyndu Laufeyjar Elísabetar Gissurardóttur sem hefur kennt skyndihjálp í þrjá áratugi, námskeiðið er yfir þrjá daga og samanstendur af 12 kennslustundum um ólík atriði í skyndihjálp. Í lok námskeiðs fá þau sem ljúka því skyndihjálparskírteini sem nálgast má rafrænt á vef rauða krossins.
Námskeiðið er opið öllum og er mælst til þess að öll sem sinna sjálfboðaliðastörfum eða eru starfsfólk innan skátahreyfingarinnar séu með gilt skyndihjálparskírteini.
Námskeiðið verður haldið í Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123, dagana 23., 24. og 26. október klukkan 17:00-20:00
Boðið verður upp á léttar veitingar á námskeiðinu en athygli er vakin á matsölustöðum í nálægð við Skátamiðstöðina.
Námskeiðið kostar 17.900 krónur og eru námskeiðsgjöld innheimt að námskeiði loknu.
Þau sem hafa áður sótt námskeiðið og sækjast eingöngu eftir upprifjun mæta aðeins fyrsta daginn og fá þannig skyndihjálparskírteini sín endurnýjuð. Verð fyrir þau sem eru í upprifjun er 10.900 krónur.
Skráning er sett á 0 krónur þar sem mörg félög greiða fyrir sína þátttakendur og hvetjum við félög að nýta fræðslustyrk sinn hjá BÍS.
Þau sem borga sjálf eru beðin um að haka líka við ‘borga sjálf’ valmöguleikann og áskilur Skátamiðstöðin sér rétt á að setja skáta í greiðsluferli sem skrá sig á 0 krónum en félög hyggjast ekki greiða fyrir.
Með því að skrá þig á skyndihjálparnámskeið samþykkir þú eftirfarandi skilmála
Auk ofangreindra skilmála gilda almennir skilmálar BÍS, sem má lesa hér.