
JOTA/JOTI 2023

Um viðburðinn:
Alheimsmót skáta í loftinu og á internetinu, eða JOTA-JOTI eins og það er skammstafað á ensku, er skátamót þar sem skátar frá öllum heimshornum fá tækifæri til að hittast á skátamóti þó þau séu stödd á mismunandi stöðum í heiminum. Á mótinu gefst skátum allsstaðar að úr heiminum tækifæri til þess að kynnast og gera ýmislegt saman í gegnum veraldarvefinn eða með fjarskiptabúnaði. Mótið er á vegum WOSM, heimssamtaka skáta.
JOTA-JOTI er stærsti skátaviðburðurinn sem er haldinn í heiminum, en árið 2015 tóku yfir 1 mikla þátt í 150 löndum! Nú verður mótið haldið 20.-22. október 2023. Okkur langar að gera viðburðinn ennþá stærri hér á landi í ár og hvetja fleiri íslenska skáta til þess að taka þátt. Því leytaði alþjóðaráð eftir skátum í vinnuhóp tileinkuðum þessum viðburði. Nánari upplýsingar koma þegar nær dregur.
Klst
Min
Sek
Lykilupplýsingar
- Byrjar:
- 20. október @ 08:00
- Endar:
- 22. október @ 17:00
- Aldurshópar:
- Róverskátar, Eldri skátar, Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar
Staðsetning
- Á netinu