- This event has passed.
Skátaþing 2024

Skátaþing 2024 fer fram helgina 5.-7. apríl á Sólheimum í Grímsnesi og á Úlfljótsvatni og er skátafélag Sólheima gestgjafi þingsins.
Þingið hefst með stetningu klukkan 19:00 föstudaginn 5. apríl á Sólheimum og lýkur kl. 13:00 sunnudaginn 7. apríl á Úlfljótsvatni. Aðstaðan á Sólheimum opnar kl. 18:00 á föstudag og frá þeim tíma er hægt að fá þinggögn afhent.
Dagskrá þingsins er skv. 21. grein laga BÍS og er sérstök athygli vakin á því að skv. 17. grein laga BÍS er kosningaár. Einnig re rétt að vekja athygli á greinum 18.-20. í lögum BÍS sem fjalla um Skátaþing.
Þátttökugjald er 9.500 kr., innifalin eru þinggögn, léttar veitingar á föstudagskvöldi, morgunverður og hádegisverður á laugardegi og sunnudegi ásamt almennri dagskrá sem verður boðið upp á samhliða þinginu. Vakin er athygli á að ekki verður boðið upp á kvöldmat á föstudegi af þinginu. Hægt verður að kaupa kvöldmat í kaffihúsinu á Sólheimum fyrir setningu þingsins á föstudag. Maturinn kostar 3.000 krónur og fer skráning fram á Sportabler.
Upplýsingasíðu Skátaþings má finna á skatarnir.is/skatathing en þar má finna allar upplýsingar um Skátaþing í rauntíma, þangað verður gögnum hlaðið upp þegar þau berast og í síðasta lagi fyrir tilgreindan frest samkvæmt lögum. Öll þinggögn verða aðgengileg þar á rafrænu formi þegar Skátaþing verður sett.
Skráning er hafin á Sportabler en skráningu lýkur 29. mars kl. 18:59
Sækja fundarboð Skátaþings á pdf-formi hér.
Details
- Start: 05/04/2024 @ 19:00
- End: 07/04/2024 @ 13:00
- Cost: 9500isk
- Event Categories: Róverskátar, Eldri skátar, Fjölskylduskátar, Drekaskátar, Fálkaskátar, Dróttskátar, Rekkaskátar
- Website: https://skatarnir.is/skatathing
Organizer
- Bandalag íslenskra skáta
- Phone 550-9800
- Email skatarnir@skatarnir.is
- View Organizer Website
Venue
- Sólheimar
-
Sólheimar
Selfoss, 805 Iceland - Phone 422-6000
- View Venue Website