Hleð Viðburðir
  • Þessi event er liðinn

Vinnuhelgi á Úlfljótsvatni – helgi 2

Um viðburðinn:

Undirbúningur fyrir sumarið á Úlfljótsvatni er í fullum gangi og leitum við nú að sjálfboðaliðum sem eru tilbúnir að koma og rétt hjálparhönd á vinnuhelgum hjá okkur.

Vinnuhelgi 2 fer fram næstkomandi helgi 20. – 21. apríl.

Við leitum að 5-10 sjálfboðaliðum sem eru 18 ára eða eldri (rekkaskátar geta komið en verða að vera í fylgd með fullorðnum).

  • Verkefni sem þarf að klára snúa að viðhaldi bæði innan og utan dyra, t.d. málningarvinna.
  • Vinnuhelgin verður í umsjá viðhaldsteymis ÚSÚ.
  • Sjálfboðaliðar geta tekið þátt alla helgina eða annan daginn.
  • Gisting og matur er í boði ÚSÚ (einnig er hægt að koma á föstudegi og gista ef fólk kýs það). Sjálfboðaliðar þurf að koma sér sjálfir á svæðið.
  • Reynslu er ekki krafist en kostur er ef sjálfboðaliðar hafa einhverja þekkingu á almennu viðhaldi, málingavinnu eða öðru. Við viljum þó allra helst sjá skátaandann, samvinnu og gleði!
  • Sjálfboðaliðar sem taka þátt báða dagana munu fá færnimerkið, LAGA.

Komdu ein/n/tt eða taktu skátavini með á skemmtilega vinnuhelgi á Úlfljótsvatni!

Ef þú hefur áhuga getur þú skráð þig á Sportabler til 18. apríl.

 

Næstu vinnuhelgar:

Vinnuhelgi á Úlfljótsvatni – helgi 3 – 4. -5 maí

Vinnuhelgi á Úlfljótsvatni – helgi 4 – 11. – 12. maí

Fleiri vinnuhelgar auglýstar síðar

Staðsetning viðburðar á korti

Klst

Min

Sek

Lykilupplýsingar

Byrjar:
20. apríl
Endar:
21. apríl
Kostnaður:
Frítt
Aldurshópar:
Rekkaskátar, Róverskátar, Eldri skátar

Skipuleggjandi

Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni

Staðsetning

Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni
Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni
Grafningsvegur efri, Selfoss 801 Iceland
+ Google Map
Sími:
482-2674
Vefsíða:
View Staðsetning Website