Skátafélagið Árbúar, Bandalag íslenskra skáta, Grænir skátar, Skátaland og Skátasamband Reykjavíkur bjóða í 20 ára afmæli Skátamiðstöðvarinnar í Hraunbænum, miðvikudaginn 30.ágúst næstkomandi.
Skátamiðstöðin verður 20 ára í ár og að því tilefni ætlum við að slá saman í veislu. Skátamiðstöðin verður opin gestum og gangandi milli 17-19 þar sem Skátaland verður með hoppukastala og klifurturn, og inn í Skátamiðstöðinni verður léttar veitingar og opið hús.
Opið verður á milli eininga þar sem gestir geta gengið um og skoðað sig um inn í Skátamiðstöðinni.
Hlökkum til að sjá ykkur !
Myndir af vígslunni 2003