Hleð Viðburðir
  • Þessi event er liðinn

Foringjanámskeið

Um viðburðinn:

Hvað gera sveitar- og aðstoðarsveitarforingjar?

Hvaða verkefnum á ég að vera að sinna sem foringi?

Komdu á námskeið þar sem markmið okkar er að svara þessum spurningum, bjóða upp á smiðjur sem nýtast ykkur í starfi og skemmta okkur saman!

Námskeiðið er ætlað starfandi skátaforingjum 16 ára og eldri (fædd 2007).

Í haust ætlum að prófa að halda sameiginlegt námskeið fyrir sveitarforingja og aðstoðarsveitarforingja. 16-18 ára fara á námskeið fyrir aðstoðarsveitarforingja og 18 ára og eldri fara á námskeið fyrir sveitarforingja.

STAÐSETNING

Námskeiðið verður haldið í Dalabúð, félagsheimili Dalabyggðar, í Búðardal.

VERÐ OG SKRÁNING

Námskeiðið kostar 17.900 krónur og er skráning opin á Sportabler.

Skráning er eftir félögum og er stillt á 0 krónur þar sem reikningur verður sendur á félögin. Þau sem ætla að borga fyrir eigin þátttöku á viðburðinum haka við valmöguleikan „Borga sjálf“

SKILMÁLAR

Með því að skrá skáta á foringjanámskeið samþykkir þú eftirfarandi skilmála:

  1. Þátttakendur sem skrá sig á 0 krónur skuldbinda sig til að greiða fullt gjald ef í ljós kemur að félag hyggst ekki greiða fyrir þau.
  2. Staðfestingargjaldið, 10% af námskeiðsgjaldi, og er það óafturkræft.
  3. Þátttakendur eru ekki sérstaklega slysatryggðir, ábyrgðartryggðir eða vátryggðir að öðru leyti af Bandalag íslenskra skáta (BÍS) í skátastarfi, bent er á að þessar tryggingar eru oft hluti af heimilis- og fjölskyldutryggingum og öðrum almannatryggingum forráðafólks.
  4. Meðferð persónugreinanlegra upplýsinga sem skráðar eru vegna þátttöku er í samræmi við samþykkta persónuverndarstefnu BÍS sem finna má hér (https://skatarnir.is/personuverndarstefna/).
  5. BÍS eða umsjónaraðili á þess vegum getur þurft að aflýsa viðburðum og mótum vegna gildra og óviðráðanlegra aðstæðna s.s. vegna náttúruhamfara, hryðjuverka, stríðs, heimsfaraldra o.fl. Við þessar aðstæður áskilur BÍS sér rétt til þess að endurgreiða ekki mótsgjaldið, þótt ávallt sé leitast eftir að hámarka endurgreiðslu til þátttakenda.
  6. Bandalag íslenskra skáta áskilur sér rétt til að halda eftir hluta af gjaldi þátttakandi greiðir sem hér segir:
    Ef hætt er við þátttöku 1 mánuði fyrir viðburð er staðfestingargjaldi haldið eftir.
    Ef skátinn hættir við þátttöku 3 vikum fyrir viðburð, er 50% af gjaldi haldið eftir.
    Ef skátinn hættir við þátttöku 14 dögum fyrir viðburð, er 75% af gjaldi haldið eftir.
    Ef skátinn hættir við þátttöku þegar skemmra er til viðburðar en sem nemur 14 dögum verður endurgreiðsla engin.

 

Staðsetning viðburðar á korti

Klst

Min

Sek

Lykilupplýsingar

Byrjar:
01/09/2023
Endar:
03/09/2023
Kostnaður:
17900kr
Aldurshópar:
Róverskátar, Eldri skátar, Rekkaskátar

Skipuleggjandi

Leiðbeinendasveitin
Sími:
5509800
Netfang:
leidbeinendasveit@skatarnir.is
Vefsíða:
View Skipuleggjandi Website

Staðsetning

Dalabúð
Miðbraut 8
Búðardalur, 370 Iceland
+ Google Map