- This event has passed.
Hringborð stjórnarmeðlima

Hringborðin eru vettvangur fyrir sjálfboðaliða um land allt í samskonar hlutverkum að kynnast innbyrðis, ræða sín á milli þær áskoranir sem þau mæta í sínu starfi og deila á milli sín lausnum og góðum aðferðum.
Hringborðið er fyrir alla stjórnarmeðlimi:
Viðburðurinn er ætlaður öllum þeim sem sitja í stjórnum skátafélaganna, sama hvaða hlutverki þau gegna.
Á þessu hringborði ætlum við að byrja á að ræða um hlutverk sjálfboðaliða, hvað drífur sjálfboðaliðana áfram, hvernig virkjum við nýja sjálfboðaliða og höldum um leið í þá gömlu. Einnig fá þau sem gegna samskonar hlutverkum í stjórnunum tækifæri til að kynnast innbyrðis, ræða sín á milli þær áskoranir sem þau mæta í sínu starfi og deila á milli sín lausnum og góðum aðferðum.
Hvar verður hringborðið:
Viðburðurinn verður í Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123. Þau sem vilja mæta á viðburðinn gegnum fjarfund mega endilega senda póst á skatarnir@skatarnir.is og við munum finna lausn við því.
Skráning á hringborðið:
Skráning á öll hringborðin fer fram á skraning.skatarnir.is, mikilvægt er að skrá sig svo skipuleggjendur geta áætlað skiptingu í rýmin miðað við umræðuhópa og umræðuefni.
Hvað verður á dagskrá við hringborðið:
Dagskrá hringborðsins er í höndum Skátaskólans sem birtir dagskrá þegar nær dregur, hægt er að senda þeim tillögu að málefnum til að ræða á fundinum með að senda þeim tölvupóst.
Details
- Date: 14/10/2024
-
Time:
19:30 - 21:00
- Cost: Free
- Event Categories: Rekkaskátar, Róverskátar, Eldri skátar
- Event Tags:samstarfsvettvangur, hringborð
Organizer
- Skátaskólinn
- Phone 5509800
- Email skataskolinn@skatarnir.is
- View Organizer Website
Venue
- Skátamiðstöðin
-
Hraunbær 123
Reykjavík, Reykjavík 110 Iceland + Google Map - Phone 5509800
- View Venue Website