Gilwell – framhald
Um viðburðinn:
Langar þig að taka næsta skref í þínu skátastarfi?
Hér gefst þér einstakt tækifæri til að upplifa skátaævintýrið á nýjan leik, því þér er boðið að koma á framhalds Gilwell þar sem þú getur unnið að þriðju eða fjórðu perlunni.
Framhalds Gilwell er fyrir þau sem vilja víkka út sjóndeildarhringinn sinn innan skátastarfs ásamt því að auka persónulegan þroska sinn.
Áhersla verður lögð á flokkastarf, tjaldbúðalíf og samvinnu, ásamt því að unnið verður að því að efla þátttakendur í leiðtogafærni, skipulagningu verkefna, stefnumótun og innleiðingu breytinga, svo fátt eitt sé nefnt.
Námskeiðið fer fram á tveimur helgum í maí og nóbember en auk þess verður unnið að stóru verkefni sem reynir á leiðtogahæfileikana, ásamt færni í að skipuleggja og framkvæma stærri verkefni.
1. hluti – 29. maí-1. júní
Námskeiðið hefst í maí með 4 daga helgarnámskeiði. Þar munu þátttakendur velja sér verkefni til að vinna að, sem reynir á leiðtogahæfileikana, ásamt færni í að skipuleggja og framkvæma stærri verkefni.
2. hluti – 7.-9. nóvember
Á lokahelginni munu þátttakendur kynna verkefnin sín og vinna áfram með leiðtogafræðin.
FORKRÖFUR
Hafa lokið Gilwell leiðtogaþjálfuninni.
VERÐ OG SKRÁNING
Verð fyrir Gilwell leiðtogaþjálfunina er 85.000 krónur og lýkur skráningu 19. maí.
Þau sem borga sjálf eru beðin um að haka líka við ‘borga sjálf’ valmöguleikann og áskilur Skátamiðstöðin sér rétt á að setja skáta í greiðsluferli sem skrá sig á 0 krónum en félög hyggjast ekki greiða fyrir.
Með því að skrá þig á Gilwell samþykkir þú eftirfarandi skilmála:
- Þátttakendur sem skrá sig á 0 krónur skuldbinda sig til að greiða fullt gjald ef í ljós kemur að félag hyggst ekki greiða fyrir þau.
- Staðfestingargjaldið, 10% af námskeiðsgjaldi og er það óafturkræft.
- Þátttakendur eru ekki sérstaklega slysatryggðir, ábyrgðartryggðir eða vátryggðir að öðru leyti af Bandalag íslenskra skáta (BÍS) í skátastarfi, bent er á að þessar tryggingar eru oft hluti af heimilis- og fjölskyldutryggingum og öðrum almannatryggingum forráðafólks.
- Meðferð persónugreinanlegra upplýsinga sem skráðar eru vegna þátttöku er í samræmi við samþykkta persónuverndarstefnu BÍS sem finna má hér (https://skatarnir.is/personuverndarstefna/).
- Bandalag íslenskra skáta áskilur sér rétt til að halda eftir hluta af gjaldi þátttakandi greiðir sem hér segir:
Ef hætt er við þátttöku 1 mánuði fyrir viðburð er staðfestingargjaldi haldið eftir.
Ef skátinn hættir við þátttöku 3 vikum fyrir viðburð, er 50% af gjaldi haldið eftir.
Ef skátinn hættir við þátttöku 14 dögum fyrir viðburð, er 75% af gjaldi haldið eftir.
Ef skátinn hættir við þátttöku þegar skemmra er til viðburðar en sem nemur 14 dögum verður endurgreiðsla engin. - BÍS eða umsjónaraðili á þess vegum getur þurft að aflýsa viðburðum og mótum vegna gildra og óviðráðanlegra aðstæðna s.s. vegna náttúruhamfara, hryðjuverka, stríðs, heimsfaraldra o.fl. Við þessar aðstæður áskilur BÍS sér rétt til þess að endurgreiða ekki mótsgjaldið, þótt ávallt sé leitast eftir að hámarka endurgreiðslu til þátttakenda.
Auk ofangreindra skilmála gilda almennir skilmálar BÍS, sem má lesa hér.
Staðsetning viðburðar á korti
Klst
Min
Sek
Lykilupplýsingar
- Byrjar:
- 29. maí
- Endar:
- 1. júní
- Kostnaður:
- 85000kr
- Aldurshópar:
- Róverskátar, Eldri skátar
Skipuleggjandi
- Gilwell leiðbeinendur
- Netfang:
- gilwell@skatarnir.is
Staðsetning
- Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni
-
Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni
Grafningsvegur efri, Selfoss 801 Iceland + Google Map - Sími:
- 482-2674
- Vefsíða:
- View Staðsetning Website