1. Viðburðir
  2. Rekkaskátar

Views Navigation

Viðburður Views Navigation

Today

Verndum þau – Námskeiðaáætlun ÆV

Skátamiðstöðin Hraunbær 123, Reykjavík, Reykjavík, Iceland

Skráningarfrestur til 4. september
Það er mikilvægt fyrir alla þá sem starfa með börnum og unglingum að vera meðvitaðir um skyldur sínar og ábyrgð, að geta lesið í vísbendingar um að vanræksla eða ofbeldi, hvort sem það er andlegt, líkamlegt eða kynferðislegt, eigi sér stað og vita hvernig bregðast á við ef slík mál skjóta upp kollinum.

Frítt

Foringjanámskeið 2024

Lækjabotnar Lækjarbotnaland 33, Kópavogur

Skráningarfrestur rennur út 1. september
Námskeiðið er ætlað starfandi skátaforingjum 16 ára og eldri og er ætlast til þess að foringjar sæki námskeiðið á fyrsta starfsári sínu.
Námskeiðið er sameiginlegt fyrir sveitar- og aðstoðarsveitarforingja.

21000kr

Ungt fólk og lýðræði 2024

Reykir Reykir, Hrútafirði, Iceland

Skráningarfrestur er 11. september
Ungmennaráð UMFÍ stendur fyrir ungmennaráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði dagana 20. - 22. september á Reykjum í Hrútafirði.
Yfirskrift ráðstefnunnar er: UNGT FÓLK OG LÝÐHEILSA

15000kr

Hringborð skátaforingja

Skátamiðstöðin Hraunbær 123, Reykjavík, Reykjavík, Iceland

Hringborðin eru vettvangur fyrir sjálfboðaliða um land allt í samskonar hlutverkum að kynnast innbyrðis, ræða sín á milli þær áskoranir sem þau mæta í sínu starfi og deila á milli sín lausnum og góðum aðferðum. Hringborðið er fyrir öll aldursbilin: […]

Frítt

Ung i Norden

Finnland

Skráningarfrestur er til 20. Ágúst
Ung i Norden er spennandi viðburður, haldinn Í Helsinki í Finnlandi helgina 11. til 13. október 2024. Viðburðurinn er  fyrir unga skáta frá Danmörku, Finnlandi, Færeyjum, Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Þema viðburðarins er “Friður”. Yfir helgina fá þátttakendur tækifæri til að læra um og ræða frið í skátasamhenginu, í nærumhverfinu og fjær. Þátttakendur munu einnig eignast nýja vini alls staðar frá norðurlöndunum, hversu frábært er það!

200Evrur

Afmæli skátastarfs á Íslandi

Skátarnir á Íslandi fagna 112 ára afmæli þann 2. nóvember, en þann dag árið 1912 var fyrsta skátafélagið stofnað, Skátafélag Reykjavíkur ,,Í Fjósinu“ bak við Menntaskólann í Reykjavík.

Samskipti og siðareglur – Námskeiðaáætlun ÆV

KFUM og KFUK Holtavegur 28, Reykjavík, Iceland

Siðareglur eru mikilvægur hlekkur í því að standa vörð um hagsmuni barna og ungmenna sem taka þátt í íþrótta- og æskulýðsstarfi og til að tryggja öryggi þeirra, sem og starfsfólks og sjálfboðaliða í starfinu. Æskulýðsvettvangurinn og þau félagasamtök sem saman […]

Frítt

Neisti 2025

Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni, Grafningsvegur efri, Selfoss, Iceland

Neisti er námskeið fyrir skáta 16 ára og eldri til að efla fjölbreytta færni í skátastarfi. DAGSKRÁ Dagskráin miðar að því að dýpka þekkingu og færni skátaforingja, auka sjálfstraust í ferðum með skátasveit eða aðra hópa skátastarfs, kveikja á skátagaldrinum […]

Inngilding og fjölmenning – Námskeiðaáætlun ÆV

KFUM og KFUK Holtavegur 28, Reykjavík, Iceland

Á námskeiðinu er meðal annars fjallað um fjölmenningarleg samfélög, almennt sem og í íslensku samhengi. Fjallað er um nokkur mikilvæg hugtök, viðhorf og umræðuhefð sem og mismunandi birtingarmyndir fordóma, kynþáttaníðs og mismununar í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Einnig fjallað um ávinninginn […]

Frítt

Hinsegin fræðsla – Námskeiðaáætlun ÆV

Skátamiðstöðin Hraunbær 123, Reykjavík, Reykjavík, Iceland

Á Íslandi og í íþrótta- og æskulýðsfélögum landsins er fjöldi barna og ungmenna hinsegin. Það er mikilvægt að þau finni fyrir öryggi og vellíðan á sínum vettvangi. Þekking og fræðsla á hinsegin málum er grundvöllur fyrir því að draga úr […]

Frítt