- This event has passed.
DróttKraftur

Dróttkraftur er viðburður fyrir alla dróttskáta á vegum Leiðbeinendasveitarinnar.
Dagskrá DróttKrafts byggist á leikjum, reynslunámi og samvinnu skátanna í flokkum. Þannig fá skátarnir tækifæri á því að kynnast öðrum dróttskátum á landinu, æfa sig í því að vera leiðtogar á meðal jafningja og taka þátt í lýðræðislegu starfi. Á DróttKrafti fá þátttakendur tækifæri á því að hafa áhrif á dagskrárval viðburðarins.
STAÐSETNING
DróttKraftur verður haldinn í skátaskálanum Lækjabotnum. Þar er gistirými í kojum en einnig stendur þátttakendum til boða að gista í tjaldi ef þau koma með búnað til þess.
VERÐ
Verð fyrir viðburðinn er 17.900 krónur. Innifalið í verðinu er dagskrá, gisting og matur alla helgina en þátttakendur koma sér sjálf á staðinn.
SKRÁNING
Skráning er opin á Sportabler en skráningu lýkur 4. október.
Details
- Start: 13/10/2023
- End: 15/10/2023
- Cost: 17900kr
- Event Category: Dróttskátar
Organizer
- Leiðbeinendasveitin
- Phone 5509800
- Email leidbeinendasveit@skatarnir.is
- View Organizer Website
Venue
- Lækjabotnar
-
Lækjarbotnaland 33
Kópavogur, 206 + Google Map - View Venue Website