- This event has passed.
Drekaskátamót 2020

Vegna óviðráðanlegra aðstæðna í samfélaginu verður að aflýsa Drekaskátamótinu í ár, en óttist ekki, Drekaskátamót verður haldið í júní 2021 með pompi og pragt!
Sólstrandaþemað verður á sínum stað og við hlökkum til að sjá ykkur við ströndina á Úlfljótsvatni!
Í tilefni af sólstrandaþemanu viljum við hvetja alla tilvonandi þátttakendur Drekaskátamóts og aðra velunnara að taka þátt í stuttu myndbandi sem verður birt 7. júní kl. 15:00 þegar Drekaskátamóti hefði átt að vera að ljúka í ár.
Til að taka þátt þarft þú að klæða þig upp í sólstrandaþema. Þú gætir til dæmis sett upp sólhatt og sólgleraugu, farið í strápils, vafið um þig stóru strandhandklæði eða annað skemmtilegt sem þér dettur í hug! Síðan tekur þú mynd af þér og sendir hana á drekaskatamot@skatar.is fyrir 1. Júní 2020, þá verður hún sett inn í Sólstrandamyndbandið mikla!
Details
- Start: 06/06/2020
- End: 07/06/2020
- Event Category: Drekaskátar
Organizer
- Bandalag íslenskra skáta
- Phone 550-9800
- Email skatarnir@skatarnir.is
- View Organizer Website
Venue
- Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni
-
Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni
Grafningsvegur efri, Selfoss 801 Iceland + Google Map - Phone 482-2674
- View Venue Website