- This event has passed.
Ds. Ramus – sumarskátastarf fyrir dróttskáta

Ungmennaráð BÍS mun halda áfram með skátasveitina DS. Ramus í sumar!
Skátafundirnir verða á höfuðborgarsvæðinu og er öllum dróttskátum velkomið að taka þátt. Krakkar sem ekki hafa verið í skátunum eru einnig velkomin að koma og vera með í sumar.
Hvar og hvenær
Skátafundir munu fara fram víðsvegar um höfuðborgarsvæðið milli 17:30 og 19:30 á þriðjudögum og fimmtudögum frá og með 19. júní til 7. ágúst.
Hvað
Starfið byggist að mestu á flokkastarfi og gefst skátunum færi á að skapa sín eigin sumarævintýr með öðrum jafningjum á ýmsum útivistarsvæðum á höfuðborgarsvæðinu og þar í kring. Þeir skátar sem ekki skrá sig með flokk munu fá aðstoð við að finna flokk sem hentar þeim.
Fyrstu fundir
Fyrstu fundir munu fara fram á Klambratúni en mæting er við Kjarvalstaði klukkan 17:30 á fyrsta fundinn þann 29. júní.
Skráning
Til að taka þátt þarf að skrá sig inn á skraning.skatarnir.is og kostar 3000 kr fyrir hvern skáta að taka þátt í allt sumar. Ef skátinn hættir við er ekki endurgreitt staðfestingargjaldið sem er 10% af heildarverðinu.
Þátttakendur sem vegna ferðalaga eða annars komast ekki á alla fundi, eru engu að síður hvött til að taka þátt.
Mikilvægt er síðan að fylgjast vel með upplýsingum á Sportabler. Einnig þarf að láta vita fyrir hvern fund hvort skáti mætir eða ekki. Ef lágmarksmæting (4 skátar) næst ekki á fund fyrir hádegi sama dag fellur fundurinn þann daginn niður.
Áhugasamir foringjar
Hér er hlekkur á foringjaskráningu fyrir áhugasama foringja.
Skátakveðjur og hlökkum til að sjá sem flesta í sumar,
Ungmennaráð BÍS
Details
- Date: 19. júní
-
Time:
17:30 - 19:30
- Cost: 3000kr
- Event Category: Dróttskátar
- Event Tags:sumarskátastarf, Dróttskátar, Sumarskátar, Skátafundir, Ramus
Organizer
- Ungmennaráð BÍS
- Email ungmennarad@skatarnir.is
- View Organizer Website
Venue
- Klambratún
-
Klambratún
Reykjavík, 105 Iceland + Google Map