Vinnuskólaliði í Útilífsskóla Hamars (Grafarvogur)
Viltu leika þér úti í allt sumar?
Vinnuskólaliði í Útilífsskóla Hamars – sumarstarf
Skátafélagið Hamar í Grafarvogi óskar eftir því að ráða sumarstarfsfólk á aldrinum 15-17 ára til að sinna leiðbeinendastörfum í Útilífsskóla Hamars, sem eru námskeið fyrir 8-12 ára börn, þar sem þátttakendur stunda útivist, kynnast öðrum krökkum og vinna skemmtileg verkefni í anda skátastarfs.
Helstu verkefni:
- Samskipti við börn í uppbyggilegu starfi
- Umsjón með leikjum og verkefnum
- Þátttaka í útivist og ævintýralegri dagskrá í anda skátastarfs
Hæfniskröfur:
- Umsækjendur þurfa að vera á aldrinum 15-17 ára
- Ábyrgðarkennd, dómgreind, glaðværð og stundvísi
- Reynsla af starfi með börnum er æskileg
- Reynsla af útivist er kostur
Frekari upplýsingar veitir Sól Gísladóttir, starfsmaður Hamars á soldisg@gmail.com, 6919595.