Það er mikilvægt fyrir öll sem starfa með börnum og unglingum að vera meðvitaðuð um skyldur sínar og ábyrgð, að geta lesið í vísbendingar um að vanræksla eða ofbeldi, hvort sem það er andlegt, líkamlegt eða kynferðislegt, eigi sér stað og vita hvernig bregðast á við ef slík mál skjóta upp kollinum.
Æskulýðsvettvangurinn hefur frá árinu 2010 staðið fyrir námskeiðinu Verndum þau. Námskeiðið er byggt á efni samnefndrar bókar og fjallar um hvernig bregðast á við grun um ofbeldi og vanrækslu gegn börnum og ungmennum. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem starfa með börnum og ungmennum og öðrum áhugasömum.
Höfundar bókarinnar eru þær Ólöf Ásta Farestveit, uppeldis, afbrota og fjölskyldufræðingur, og Þorbjörg Sveinsdóttir, sálfræðingur, en Þorbjörg sér um kennslu á námskeiðinu.
Æskulýðsvettvangurinn gerir kröfu um að allir starfsmenn og sjálfboðaliðar innan aðildarfélaga Æskulýðsvettvangsins sæki námskeiðið.
Við minnum á að mælst er til þess að sjálfboðaliðar skátanna sæki námskeiðið á fjögurra ára fresti.