Fyllist þú eldmóði í hvert skipti sem þú tekur þátt í kröftugum samræðum um hin ýmsu málefni skátastarfs? Skátahreyfingin þróast stöðugt og það er skáta að gæta þess að hreyfingin taki skref í rétta átt. Skátaþing – Taka tvö verður haldið á Úlfljótsvatni, málefni skátahreyfingarinnar verða krufin og skátar spjalla saman um það sem skiptir þá máli. Skáti er líka glaðvær og það verður að sjálfsögðu nóg af gleðilegri dagskrá yfir helgina. Takið dagsetninguna frá! Nánari upplýsingar eru væntanlegar.