Hleð Viðburðir
  • Þessi event er liðinn

Skátaþing 2025

Um viðburðinn:

Skátaþing 2025 fer fram helgina 4.-6. apríl í Víðistaðaskóla, Hafnarfirði og er skátafélagið Hraunbúar gestgjafi þingsins.

Þingið hefst með setningu klukkan 19:00 föstudaginn 4. apríl í Víðistaðaskóla og lýkur klukkan 13:00 sunnudaginn 6. apríl. Aðstaðan í Víðistaðaskóla opnar klukkan 17:00 á föstudag og frá þeim tíma er hægt að fá þinggögn afhent.

Dagskrá þingsins er skv. 21. grein laga BÍS og er sérstök athygli vakin á því að skv. 23. grein laga BÍS verður kosið í þrjár stöður í stjórn BÍS en skv. 17. grein laga BÍS eru ekki kosningar í fastaráð. Einnig er rétt að vekja athygli á greinum 18.-20. í lögum BÍS sem fjalla um Skátaþing.

Vakin er athygli á að ekki verður boðið upp á kvöldmat á föstudegi af þinginu.

Upplýsingasíðu Skátaþings má finna á skatarnir.is/skatathing en þar má finna allar upplýsingar um Skátaþing í rauntíma, þangað verður gögnum hlaðið upp þegar þau berast og í síðasta lagi fyrir tilgreindan frest samkvæmt lögum. Öll þinggögn verða aðgengileg þar á rafrænu formi þegar Skátaþing verður sett.

 

Verð

Þátttökugjald er 12.900 kr., innifalin eru þinggögn, léttar veitingar á föstudagskvöldi, morgunverður og hádegisverður á laugardegi og sunnudegi ásamt almennri dagskrá sem verður boðið upp á samhliða þinginu.

Skráning er eftir skátafélögum og er stillt á 0 krónur þar sem mörg félög greiða fyrir sína fulltrúa.

Þau sem borga sjálf eru beðin um að velja ‘borga sjálf/t/ur’ í stað skátafélags og taka fram í athugasemd hvaða félagi þau tilheyra. Skátamiðstöðin áskilur sér rétt á að setja skáta í greiðsluferli sem skrá sig á 0 krónum en félög hyggjast ekki greiða fyrir.

Skráning er opin inn á skraning.skatarnir.is en skráningu á Skátaþing lýkur 28. mars kl. 18:59

Staðsetning viðburðar á korti

-21

Dagur

-16

Klst

-5

Min

-51

Sek

Lykilupplýsingar

Byrjar:
4. apríl
Endar:
6. apríl
Kostnaður:
12900kr.
Aldurshópar:
Rekkaskátar, Róverskátar, Eldri skátar, Fjölskylduskátar, Drekaskátar, Fálkaskátar, Dróttskátar

Skipuleggjandi

Bandalag íslenskra skáta
Sími:
550-9800
Netfang:
skatarnir@skatarnir.is
Vefsíða:
View Skipuleggjandi Website

Staðsetning

Víðistaðaskóli
Hrauntunga 7
Hafnarfjörður, 220 Iceland
+ Google Map
Vefsíða:
View Staðsetning Website

BANDALAG ÍSLENSKRA SKÁTA


Hraunbær 123,110 Reykjavík (sjá á korti)Sími: 550 9800Netfang: skatarnir@skatarnir.is 

OPNUNARTÍMI SKRIFSTOFU

Mánudaga – fimmtudaga: 09:00 – 16:00Föstudaga: 09:00 – 13:00

SAMFÉLAGSMIÐLAR


 

Privacy Preference Center