Námskeið í samtalstækni og endurgjöf fyrir stjórnir félaga sem ætla að nota félagaþrennuna, þá aðallega, félagsforingja, sjálfboðaliðaforingja og dagskrárforingja. Einnig þau félög sem hafa hug á að taka þátt í innleiðingu á sjálfboðalíkani BÍS, þ.e. þá sem munu sjá um endurgjöf og samtöl við sjálfboðaliða.
Við höfum fengið gamlan skáta úr Kópum með okkur í lið með okkur, sem er hún Ágústa Sigrún Ágústsdóttir, mannauðsráðgjafi, markþjálfi og fararstjóri með meiru. www.agustasigrun.is
Námskeiðið verður þriðjudaginn 17. ágúst í Hraunbæ 123 og hefst kl. 18.00 og reiknum með þremur tímum í fyrirlestur og þjálfun. Það verður svo boðið upp á hressingu inn á milli.