Boðað er til samráðsfundar stjórnar og fastaráða BÍS.
Farið verður yfir verkefnastöðu ráða, rýnt í stöðu stefnu BÍS til 2025 og hlutverk ráðanna í að framfylgja því sem á eftir að ná. Starfsráð mun tryggja að öll fastaráð séu vel upplýst um starfsgrunninn og svo verður tækifæri til þess að ráðin fundi sín á milli um sameiginleg verkefni.
Skráning fer fram í viðburðardagatali í Sportabler hjá þeim sem eru í fastaráðum eða stjórn BÍS.