Það er komið að því!
Fyrsta helgin í Gilwell leiðtogaþjálfuninni árið 2023 verður haldið helgina 20.-22. janúar.
Gilwell er tilvalið fyrir skáta, 20 ára og eldri, að upplifa 10 daga skátaævintýri sem inniheldur leiðtogaþjálfun og uppbyggingu einstaklingsins.
Á Gilwell fá þátttakendur að efla og öðlast nýja færni í ólíkum hlutverkum innan skátahreyfingarinnar sem mun einnig koma að góðum notum í þeirra daglega lífi.
Gilwell leiðtogaþjálfunin tekur ár en er skipt upp í þrjár lotur
1. hluti – Skátinn
Í fyrsta hluta er athyglinni beint að skátanum sjálfum og unnið með sjálfseflingu, framkomu og gildum einstaklings í og utan skátastarfs
Í öðrum hluta er flokkastarf í forgrunni. Á þessu skrefi munu flokkarnir reisa tjaldbúð sem þeir búa og starfa í með sínum flokki og glíma við ögrandi verkefni sem miða að því að efla hópinn og auka færni í útivist og tjaldbúðalífi.
Í þriðja hlutanum vinnum við með leiðtogafræðin og hæfni hvers og eins.
Þátttakendur þurfa að hafa lokið námskeiði fyrir sveitarforingja, eða sambærilegu námskeiði. Boðið verður upp á auka námskeið í janúar fyrir þau sem hafa ekki lokið slíku námskeiði.
Verð fyrir Gilwell leiðtogaþjálfunina er 120.000 krónur en innifalið í því er gisting, matur og dagskrá fyrir öll skrefin. Boðið verður upp á 10% afslátt á verðinu fyrir þau sem skrá skig fyrir 1. desember.
Skráning er eftir skátafélögum og á sett á 0 krónur þar sem mörg félög greiða fyrir sína þátttakendur og hvetjum við félög að nýta fræðslustyrk sinn hjá BÍS.
Þau sem borga sjálf eru beðin um að haka líka við ‘borga sjálf’ valmöguleikann og áskilur Skátamiðstöðin sér rétt á að setja skáta í greiðsluferli sem skrá sig á 0 krónum en félög hyggjast ekki greiða fyrir.
Með því að skrá þig á Gilwell samþykkir þú eftirfarandi skilmála: