Þriðjudaginn 21.nóvember klukkan 19:00 verður flóttarými Róverskáta í Garðbúaheimilinu.
Öllum Róverskátum og eldri er boðið að koma og spreyta sig á glænýju flóttarými í skátaanda.
Minni þrautir, spil og veitingar verða í boði meðan hóparnir skiptast á að leysa flóttarýmið.
Viðburðurinn er flokkaviðburður og skráning er hafin á sportabler. Mikilvægt er að setja í athugasemd nafnið á flokknum sem þið tilheyrið við skráninguna. Einstaklingum utan flokka verður raðað saman í flokk svo endilega skráið ykkur þó flokkurinn kemst ekki eða þið eruð ekki með flokk.
Viðburðurinn er styrktur af Evrópusambandinu og er því ókeypis fyrir þátttakendur !