- This event has passed.
Fálkaskátadagurinn 2025
1. nóvember @ 13:00 - 17:00

Fálkaskátadagurinn er árlegur viðburður sem haldinn er fyrstu helgina í nóvember. Skátafélög skiptast á að halda daginn þar sem þau bjóða fálkaskátum landsins í heimsókn í sitt hverfi/bæjarfélag þar sem fálkarnir taka þátt í dagskrá og gleðjast saman.
Hraunbúar eru gestgjafar fálkaskátadagsins í ár en hann verður haldinn við Hvaleyrarvatn laugardaginn 1. nóvember.
Þar fá skátarnir tækifæri til að hitta fálkaskáta úr öðrum félögum, fara í póstaleik, drekka kakó og syngja saman. Skátarnir fá einnig hressingu á meðan á viðburðinum stendur.
Mæting er kl. 13:00 í Skátalundi og mun dagskráin standa til 17:00. Skátarnir þurfa að mæta klæddir til útiveru allan tímann og með bolla til að fá kakó í.
Skráning er á abler.
Details
- Date: 1. nóvember
-
Time:
13:00 - 17:00
- Event Category: Fálkaskátar
Venue
- Skátalundur
-
Skátalundur
Hafnarfjörður, Göngustígur 221 Iceland + Google Map - Phone skatalundur@gmail.com
- View Venue Website