- This event has passed.
Drekaskátamót 2023

Drekaskátamót 2023 verður haldið á Úlfljótsvatni dagana 2.-4. júní. Mótið er árlegur viðburður í viðburðardagatali BÍS og þemað í ár verður diskóþema og eru drekaskátasveitir hvattar til að undirbúa ferðina samkvæmt því.
Mótsgjaldið til BÍS verður 9.000 krónur fyrir þátttakendur og 5.000 krónur fyrir foringja. Staðfestingargjald er 10% af mótsgjaldi og fæst ekki endurgreitt ef þátttakandi hættir við skráningu eða aflýsa þarf mótinu af óviðráðanlegum ástæðum. Fyrir hverja 10 þátttakendur fær félagið 1 skátaforingja frían á mótið. Innifalið í mótsgjaldi er gisting, öll dagskrá, einkenni og kvöldmáltíð á föstudegi og á laugardegi. Athygli er vakin á að félögin bæta sameiginlegum kostnaði ofan á en félögin eru gjarnan líka með aðskilið gjald fyrir sameiginlegum ferðakostnaði, ef það er sameiginlegur matur hjá félaginu og öðru.
Skráning á mótið er opin í Sportabler en hana má finna á hlekkinum skraning.skatarnir.is, skráning lokar 17. maí.
Fyrir frekari upplýsingar er vísað til upplýsingabréfa mótstjórnar sem birtast reglulega á þessari síðu og verða send félögum og drekaskátaforingjum.
Drekaskátamót 2023 – Fyrsta upplýsingabréf
Details
- Start: 02/06/2023 @ 16:00
- End: 04/06/2023 @ 15:00
- Event Category: Drekaskátar
Organizer
- Bandalag íslenskra skáta
- Phone 550-9800
- Email skatarnir@skatarnir.is
- View Organizer Website
Venue
- Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni
-
Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni
Grafningsvegur efri, Selfoss 801 Iceland + Google Map - Phone 482-2674
- View Venue Website