Ævintýrið heldur áfram að leika við drekaskátana okkar á drekaskátadeginum 4. mars.
Að þessu sinni heimsækjum við skátafélagið Svani á Álftanesi þar sem við fáum að kynnast heimahögum þeirra við Bjarnastaði.
Dagskráin sjálf hefst kl. 13 en skátasveitirnar eru velkomnar að koma fyrr og borða hádegismat í Bjarnastöðum áður en dagskrá hefst. Gert er ráð fyrir að dagskráin lýkur kl. 16.
Ef þið viljið taka strætó á svæðið þá gengur strætó nr. 23 á Álftanes og hægt að fara út á annað hvort stoppustöðinni Klukkuholt eða Höfðabraut og rölta restina.
Ef einhver félög eru að koma utan að landi þá er velkomið að tjalda á fletinum fyrir utan skátaheimilið en það verður ekki hægt að nýta heimilið fyrir innilegur.
Endilega hafið samband við Erlu hjá svanir@svanir.is ef það eru ofnæmi eða aðrar matar þarfir.
13:00 – Setning
13:30 – Ratleikur hefst
15:00 – Ratleik lýkur, slit og kakó
– Skátaklútur
– Dagspoki
– Hlý föt (klæða sig eftir veðri, húfa, vettlingar, buff, ullarsokkar)
– Vatnsbrúsi / bolli til að drekka kakó
– Hádegismatur ef þið viljið borða fyrir dagskrána