- This event has passed.
Aðstoðarsveitaforingja námskeið

Hvað gera aðstoðarsveitarforingjar?
Hverjar eru skyldur mínar og hvaða ábyrgð ber ég sem aðstoðarsveitarforingi?
Komdu á námskeið, í fallegu umhverfi Úlfljótsvatns, þar sem markmið okkar er að svara þessum spurningum, bjóða upp á smiðjur sem nýtast ykkur í starfi og skemmta okkur saman! Meðal þeirra smiðja sem verða í boði eru leikjafræði, útieldun, viðburðastjórnun, mismunandi leiðtogafærni og forystustílar
Námskeiðið er ætlað aðstoðarsveitarforingjum fædd 2002-2006 (seinasta ár í dróttskátum til fyrsta ár í róverskátum). Námskeiðið kostar 9.900 kr og innifalið er gisting, matur og námskeiðsgögn. Athugið að þátttakendur þurfa að koma sér sjálf á Úlfljótsvatn.
Ekki missa af þessu skemmtilega tækifæri til að hitta aðra skáta í skemmtilegu umhverfi!
Athugið að takmörkuð sæti eru í boði en um að gera að skrá sig á biðlista þegar námskeiðið er orðið fullt!
Details
- Start: 15/10/2021 @ 20:00
- End: 17/10/2021 @ 16:00
- Cost: 9900kr.
- Event Categories: Rekkaskátar, Róverskátar
Venue
- Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni
-
Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni
Grafningsvegur efri, Selfoss 801 Iceland + Google Map - Phone 482-2674
- View Venue Website