Fálkaskátadagurinn 2023
Fálkaskátadagurinn er árlegur viðburður sem haldinn er fyrstu helgina í nóvember. Skátafélög skiptast á að halda daginn þar sem þau bjóða fálkaskátum landsins í heimsókn í sitt hverfi/bæjarfélag þar sem fálkarnir taka þátt í dagskrá og gleðjast síðan saman á kvöldvöku með kakó.
Gestgjafinn í ár er skátafélagið Vogabúar og munu þau bjóða fálkaskátum landsins í heimsókn til þeirra heimahaga í Grafarvogi, sunnudaginn 5. nóvember.
Mæting er klukkan 13 í Spönginni. Síðan verður ratleikur um hverfið sem endar í Skátaheimili Vogabúa 16:30 þar sem varðeldur og kakó bíður fálkaskátanna í lok ratleiksins.
Dagurinn endar í Skátaheimili Vogabúa, Logafold 106 í Grafarvogi, klukkan 17.
Ef skátasveitirnar vilja taka strætó á svæðið þá fara ýmsar leiðir í Spöngina eins og nr. 6, 7, 18, 24, 25. En einungis leiðir 6, 24 og 31 fara í strætóstoppustöðina næst Skátaheimilinu, Logafold. Hægt er að skoða leiðarnar betur á heimasíðu Strætó.
Gróf dagskrá:
13:00 - Mæting í Spöngina
13:30 - Ratleikurinn hefst
16:30 - Varðeldur, söngur og Kakó við Skátaheimili Vogabúa
17:00 - Slit
Hugmynd af útbúnaðarlista:
- Skátaklútur.
- Dagspoki.
- Vatnsbrúsi.
- Bolli fyrir kakó.
- Smá nesti til að narta í á meðan ratleiknum stendur. T.d. orkustykki, ávextir.
- Hlý föt (Klæða sig eftir veðri en dagurinn er í byrjun nóvember svo hægt er að gera ráð fyrir köldum degi. T.d. föðurland, hlý yfirföt, húfa, vettlingar, buff, ullarsokkar, yfirfatnaður eða regnföt ef veðrið spáir rigningu).
Skráning er opin á skraning.skatarnir.is