
Kæru skátar
Í tilefni þess að liðin eru 60 ár frá fyrstu afhendingu forsetamerkisins bjóðum við forsetamerkishöfum og öðrum skátum til gleðskapar á afmælisdegi skátastarfs á Íslandi, 2. nóvember næstkomandi.
Veislan mun fara fram í Jötunheimum, skátaheimili Vífils að Bæjarbraut 7 í Garðabæ milli klukkan 15:00 og 17:00.
Þar munum við syngja og rifja upp góðar stundir saman auk þess að boðið verður upp á kaffi og með því. Þess má geta að fyrr um daginn fer fram forsetamerkisafhending á Bessastöðum en þar munu forsetamerkishafar 1464-1488 fá merkið afhent.
Með kærri skátakveðju,
Bandalag íslenskra skáta