Um vetraráskorun Crean:

Verkefnið er samstarfsverkefni BÍS og Scouting Ireland. Crean vetraráskorun hefur verið haldin síðustu ár og stendur yfir sjö mánaða tímabil sem lýkur í viku löngum leiðangri um Hellisheiði. Verkefnið hefur verið vel sótt og frá Írlandi koma allt að 30 skátar sem hafa farið í gegnum langt umsóknar- mats- og undirbúningsferli og er BÍS með pláss fyrir hámark 16  íslenska þátttakendur.

Markmið verkefnisins

Markmið verkefnisins er að þátttakendur öðlist færni í útivist í mismunandi aðstæðum ásamt sjálfbærni í vetrarferðum á fjöllum. Skátarnir læra undirstöðuatriði fjallaferða og vetrarferðamennsku. Meðal annars skyndihjálp á fjöllum, gönguferðir að vetri, rötun og kortalestur, að nota GPS, næringarfræði ferðamannsins, skálahegðun og ferðareglur í hópferðum, veðurfræði á fjöllum, og ýmislegt annað. Verkefnið skiptist í þrennt;  fjórar undirbúnings ferðir, persónuleg verkefni unnin í frítíma og ferðin í febrúar.

Fyrir hverja

Takmarkað pláss er fyrir þátttakendur og mun elsta árið í dróttskátum fá forgang en umsóknir og umsagnir ráða úrslitum um hver verða tekin inn. Því er mikilvægt að vanda til verka við umsóknina. Ætlast er til þess að þátttakendur taki þátt í undirbúningsútilegunum og vinni að sínum settum markmiðum í leiðarbók fram að febrúarferðinni. Verkefnin eru á sviði vetrarferðamennsku, sjálfskoðunar, markmiðasetninga og samfélagsvinnu. Vinna þarf öll verkefnin á tilsettum tíma til að geta haldið áfram í áskoruninni. Skipuleggjendur áskila sér rétt til að enda þátttöku ef að þátttakendur standa ekki skil á verkefnum eða sýna að þau hafa ekki getu eða vilja til að ljúka verkefninu.

Hvenær

Crean vetraráskorunin sjálf á sér ávallt stað í febrúar en undirbúningshelgarnar dreifast um mánuðina á undan. Nákvæm dagsetning fer yfirleitt eftir hvenær hagstætt sé fyrir Írana að koma til landsins ásamt skólafríium.

Árið 2024-2025 gilda eftirfarandi dagsetningar og skiptust verkefnin í eina kvöldstund, fjórar undirbúningsútilegur og einn leiðangur um Hellisheiði.

Útilega 1
  • Fræðslukvöld: 29. ágúst, fimmtudagur í Reykjavík
  • 1. Útilega: 31. ágúst – 1. september
Útilega 2
  • Undirbúningskvöld: 3. október
  • 2. Útilega:  4. – 6. október
Útilega 3
  • Undirbúningskvöld: 19. nóvember
  • 3. Útilega: 22. – 24. nóvember
Útilega 4
  • Undirbúningskvöld: 16. janúar
  • 4. Útilega: 17-19. janúar
CREAN áskorunin
  • Undirbúningskvöld: 11. febrúar
  • CREAN áskorunin: 14. – 22. febrúar

Kostnaður

Crean 2025 kostar 96.000 kr.

Innifalið í því er dagskrá, gisting og flutningur af heiðinni í febrúar. Þátttakendur þurfa sjálf að koma með annan mat fyrir undirbúningsferðirnar og koma sér á staðsetningar ferða og heim aftur. Þátttakendur þurfa að hafa allan helsta persónulegan búnað til vetrarferð s.s. góðan skjólfatnað, svefnpoka sem þolir vetrarveður, bakpoka og gönguskó. Ekki er nauðsynlegt að eiga klifurbúnað, ísaxir, brodda, skíði eða tjöld. Ef þátttakandi á ekki réttan búnað, er gott að athuga hvort hægt sé að fá lánaðan búnað hjá ættingjum, vinum eða jafnvel skátafélagi.

 

Skráning

Skráning fer fram bæði með því að fylla út skráningareyðublaðið hér að neðan og einnig á skráningarsíðu skátanna : skraning.skatarnir.is.

Íslenski þátttakendahópurinn hefur einungis 16 pláss og mun leiðbeinendahópurinn fara yfir umsóknirnar sem berast og velja úr þeim þá skáta sem komast í þátttakendahópinn. Því skiptir miklu máli að vanda vel til verka við umsóknina.

Skráningarfresturinn er til og með 15. ágúst. 

Umsókn þátttakenda í Vetraráskorun Crean 2024-2025
Vetraráskorunin er samstarfsverkefni BÍS og Scouting Ireland þar sem skátar frá Írlandi koma til Íslands í febrúar og takk þátt í tveggja daga göngu í íslenskri náttúru og vetrarveðri. Íslenskir þátttakendur hefja undirbúning um haustið 2024 með undirbúningshelgum og verkefnum í leiðarbók. Árið 2025 mun áskorunin fara fram dagana 14. – 22. febrúar.
www.abler.io/shop/skatarnir