- This event has passed.
RekkaKraftur

Það er komið að fyrsta RekkaKraftinum!
RekkaKraftur er hluti af nýrri stefnu í leiðtogaþjálfun Skátaskólans og er fyrir alla rekkaskáta. Á Rekkakrafti er áhersla lögð á að veita rekkaskátum tækifæri á því að taka þátt í spennandi dagskrá sem miðar að því að efla fjölbreytta hæfni sem kemur að góðum notum í skátastarfi.
Að þessu sinni verður RekkaKraftur haldinn helgina 27.-29. maí á Úlfljótsvatni og verður áhersla lögð á góðar samverustundir við tjaldbúðavinnu ásamt því að fræðast nánar um markmiðasetningu og hvernig hægt er að nýta hana í skátastarfi og foringjastörfum.
Námskeiðið kostar 10.900 krónur og innifalið í því er allur matur fyrir helgina – ATH að þátttakendur þurfa að koma sér sjálf á Úlfljótsvatn
Skráningin er opin en skráningarfrestur er út 19. maí
Details
- Start: 27/05/2022 @ 19:00
- End: 29/05/2022 @ 16:00
- Cost: 10900kr.
- Event Category: Rekkaskátar
Organizer
- Leiðbeinendasveitin
Venue
- Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni
-
Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni
Grafningsvegur efri, Selfoss 801 Iceland + Google Map - Phone 482-2674
- View Venue Website