Hleð Viðburðir
  • Þessi event er liðinn

Verndum þau

Um viðburðinn:

ATHUGIÐ!: VEGNA SÉRSTAKRA AÐSTÆÐNA Í ÞJÓÐFÉLAGINU UM ÞESSAR MUNDIR GÆTI SVO ORÐIÐ AÐ ALLIR ÞÁTTTAKENDUR 17 ÁRA OG ELDRI VERÐI BEÐIN UM AÐ MÆTA Á NÁMSKEIÐIÐ Í GEGNUM FJARFUNDARBÚNAÐ. HLEKKUR Á SLÍKAN FJARFUND YRÐI BIRTUR Á ÞESSARI SÍÐU OG SENDUR Í TÖLVUPÓSTI Á SKRÁÐA ÞÁTTTAKENDUR.

Verndum þau námskeið

4. júní 2020

Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123.

Það er mikilvægt fyrir alla þá sem starfa með börnum og ungmennum að vera meðvitaðir um skyldur sínar og ábyrgð, að geta lesið í vísbendingar um að vanræksla eða ofbeldi, hvort sem það er andlegt, líkamlegt eða kynferðislegt, eigi sér stað og vita hvernig bregðast á við ef slík mál koma upp.

Æskulýðsvettvangurinn hefur frá árinu 2010 staðið fyrir námskeiðinu Verndum þau fyrir þau félagasamtök sem saman mynda vettvanginn og aðra áhugasama. Námskeiðið er byggt á efni samnefndrar bókar og fjallar um hvernig bregðast á við grun um ofbeldi og vanrækslu gegn börnum og ungmennum

Á námskeiðinu er m.a farið yfir:

Tilkynningaskyldu starfsmanna sem vinna með börnum og unglingum.
Líkamlegt, andlegt og kynferðislegt ofbeldi og vanrækslu hvers konar.
Hvernig taka skuli á móti ofbeldisfrásögn.
Reglur í samskiptum við börn og ungmenni.
Ýmis atriði sem gott er fyrir vinnuveitendur að hafa í huga.
Úrræði sem í boði eru í samfélaginu fyrir börn og ungmenni sem eru þolendur ofbeldis.

Höfundar bókarinnar, Ólöf Ásta Farestveit, uppeldis- og afbrotafræðingur og Þorbjörg Sveinsdóttir, sálfræðingur, sjá um kennslu á námskeiðinu. Báðar starfa þær í Barnahúsi og hafa mikla reynslu af barnaverndarmálum.

Næsta námskeið fyrir þau félagasamtök sem saman mynda Æskulýðsvettvanginn fer fram þann 4. júní 2020. Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Staðsetning viðburðar á korti

Klst

Min

Sek

Lykilupplýsingar

Dagsetning:
04/06/2020
Tími
17:00 - 21:00
Kostnaður:
Frítt
Aldurshópar:
Rekkaskátar, Róverskátar, Eldri skátar

Skipuleggjandi

Bandalag íslenskra skáta
Sími:
550-9800
Netfang:
skatarnir@skatarnir.is
Vefsíða:
View Skipuleggjandi Website

Staðsetning

Skátamiðstöðin
Hraunbær 123
Reykjavík, Reykjavík 110 Iceland
+ Google Map
Sími:
5509800
Vefsíða:
View Staðsetning Website