Hleð Viðburðir
  • Þessi event er liðinn

Örnámskeið um neteinelti

Um viðburðinn:

Samskipti hafa í auknu mæli færst yfir á netið og eru rafræn samskipti orðin ein helsta samskiptaleið fólks í dag. Rannsóknir sýna fram á að ungt fólk notar netið í allt að 40 klukkustundir á viku og að allt að 92% barna fara á netið á hverjum degi. Vegna þessa eru þau berskjölduð gagnvart neteinelti og öðru ofbeldi á netinu. Mikilvægt er að leita leiða til þess að sporna gegn neteinelti á meðal barna og ungmenna vegna þeirra alvarlegu afleiðinga sem það getur haft, jafnt fyrir þolendur, gerendur og samfélagið í heild sinni.

Æskulýðsvettvangurinn býður upp á rafrænt örnámskeið um neteinelti fimmtudaginn 18. febrúar n.k.

Á námskeiðinu verður meðal annars reynt að svara eftirfarandi spurningum:

Hvað er neteinelti?
Hverjar eru birtingarmyndir neteineltis?
Hvar fer neteinelti fram?
Hverjar eru vísbendingarnar um að neteinelti eigi sér stað?
Hverjar eru afleiðingar neteineltis?
Hvað er hægt að gera?

Námskeiðið er hluti af vitundarvakningu Æskulýðsvettvangsins um neteinelti á meðal barna og ungmenna sem hefur það að markmiði að auka vitund um einelti á netinu og alvarlegar afleiðingar þess með það að markmiði að sporna gegn því að börn og ungmenni tileinki sér slíka hegðun.

Fyrirlesari á námskeiðinu er Sema Erla, framkvæmdastýra Æskulýðsvettvangsins og höfundur og ábyrgðaraðili verkefnisins.

Æskulýðsvettvangurinn er samstarfsvettvangur Bandalags íslenskra skáta, KFUM og KFUK á Íslandi, Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Ungmennafélags Íslands. Samtökin vinna að sameiginlegum hagsmunamálum barna og ungmenna í íþrótta- og æskulýðsstarfi.

Klst

Min

Sek

Lykilupplýsingar

Dagsetning:
18/02/2021
Tími
13:15 - 14:00
Aldurshópar:
Dróttskátar, Rekkaskátar, Róverskátar, Eldri skátar
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/1148380165597366/

Skipuleggjandi

Æskulýðsvettvangurinn
Sími:
5682929
Netfang:
aev@aev.is
Vefsíða:
View Skipuleggjandi Website

Staðsetning

Á netinu