Hleð Viðburðir
  • Þessi event er liðinn

Neisti 2021

Um viðburðinn:

Þjálfun, fræðsla og efling sjálfboðaliða frá 16 ára aldri hvort sem þau eru foringjar eða stjórnarfólk.

Nú nýtum við okkur tæknina til hins ýtrasta og höldum RAF-Neista 2021. Hópumst í kring um tölvur og tæki og lærum af þeim bestu, fáum hvatningu og skátaneista til að glæða skátastarfið nýju lífi árið 2021. Viðburðurinn fer að öllu leiti fram í fjarfundarbúnaði og verður linkur sendur á alla skráða þátttakendur.

Skemmtidagskrá verður við rafræna setningu viðburðarins klukkan 19:30 á föstudagskvöldi og stendur til 21:00. Dagskrá verður síðan í gangi laugardag og sunnudag milli 09:00 og 16:00 en nákvæmari tímatafla verður send þátttakendum.

Ýmsar smiðjur standa til boða þetta árið og eru nýjar smiðjur merktar með 💥

  1. Færnimerkin -grunnnámskeið-
    Hvernig virka færnimerkin ?  Hvernig er kerfið í kring um þau sett upp ?  Hvernig nota ég færnimerkin til að skipuleggja skátastarfið ?  Hvar á ég að setja merkin ? Svörin við öllum þessum spurningum fást í þessari smiðju auk þess sem við heyrum  reynslusögur sveitarforingja.Leiðbeinandi: Sigurgeir B. Þórisson

     

  2. 💥 Heimsmarkmiðin
    Hvernig notum við heimsmarkmiðin sem táknræna umgjörð í skátastarfi? Hver er reynsla skáta í öðrum löndum? Hvaða stuðningsefni geta skátaforingjar nýtt sér? Heimsmarkmiðahópurinn stýrir smiðju um skátastarf og heimsmarkmið Sameinuðu Þjóðanna. 

    Leiðbeinandi: Heimsmarkmiðahópurinn 

  3. 💥 Youtube og skátar
    Langar þig að búa til kennsluvideó fyrir skátana þína svo þeir geti unnið færnimerki heima með fjölskyldunni ? Hvernig er best að byggja upp videó fyrir Youtube ?  Sonia Nicholson er skáti frá Scotlandi sem heldur úti skemmtilegri youtube rás og miðlar hér af sinni reynslu.Leiðbeinandi: Sonya Nicholson-Guðrúnardóttir  (Kennt er á ensku)

     

  4. Geimurinn, stjörnur og stjörnumerki
    Hvernig vekjum við áhuga skátanna á hinum endalausu víddum himingeimsins? Hér fáið þið bæði innsýn í stjörnufræði og hugmyndir að útfærslum í dagskrá.Leiðbeinandi: Sigríður Kristjánsdóttir, jarðeðlisfræðingur

     

  5. 💥Veðurfræði
    Hvernig í ósköpunum á maður að skilja veðurfréttir og nýta sér upplýsingarnar við undirbúning útilega og ferða.

    Leiðbeinandi: Elín Björk Jónasdóttir, veðurfræðingur
     
  6. Saga skátastarfs
    Árið 1907 fór Baden Powell með nokkra unga drengi í útilegu til Brownsea eyju og gaf síðan út bók sem átti eftir að valda straumhvörfum í æskulýðsstarfi um allan heim. Síðan þá hefur ýmislegt merkilegt gerst. Sagnfræðineminn Ásgerður Magnúsdóttir fer yfir sögu skátastarfs. 

    Leiðbeinandi: Ásgerður Magnúsdóttir

  7. 💥Skátajörm
    Það eru ólíkar skoðanir á því hvort gróft matarkex sé ætlað til manneldis eða steypublöndunar en flestir eru á þeirri skoðun að skemmtilegt sé að jarma um skátastarfið. Halldór Valberg verður með stórskemmtilega smiðju um skátajörm.Leiðbeinandi: Halldór Valberg

    Samskipti og samvinna

  8. 💥Að halda skátafund í covid – Show and tell
    Það er svo sannarlega áskorun að halda skátafundi í heimsfaraldri, en þá er gott að hafa kjörorð skáta hugföst. 

    Leiðbeinendur: Tinnusteinarnir, 10 mín á hvert show and tell 

  9. 💥Skátaminecraft
    Láttu leiða þig um undraheima Minecraft og skoðaðu allan skátaheiminn sem búið er að byggja í Skátacraft.Leiðbeinandi: Valur Kári rekkaskáti í Skjöldungum
  10. 💥Trans börn og ungmenni
    Fræðsla frá Samtökunum 78 sérsniðin fyrir skátaforingja og leiðbeinendur í æskulýðsstarfi.  Hvað er trans? Hvað þurfa foringjar að hafa í huga þegar kemur að trans börnum og ungmennum í skátastarfi ?Leiðbeinandi: Tótla I. Sæmundsdóttir

    Foringinn- öruggur leiðtogi

     

  11. 💥Skátafundur-grunnnámskeið
    Smiðja fyrir nýja foringja og fyrir þá sem vilja skerpa á grunninum.  Góð uppskrift að skátafundi og hvernig gott er að skipuleggja fram í tímann. Frábær smiðja sem stuðlar að öryggi foringja í dagskrárgerð.Leiðbeinandi: Katrín, Heiða og Sædís

     

  12. 💥Útilegur -grunnnámskeið
    Hvernig skipulegg ég helgarútilegu ?  Í þessari smiðju færðu að prófa góða uppskrift af útilegu og góð ráð við skipulagningu og tímalínu fram að útilegu.Leiðbeinandi: Egill Erlingsson

     

  13. 💥Svangi mangi og fjallamamma -grunnnámskeið-
    Hvernig skipulegg ég matarmál í ferðum og útilegum.  Hvernig á að reikna magn fyrir fjölda þátttakenda ?  Í þessari smiðju færðu að kafa djúpt í pöntunarskjal fjallamömmu og fjallapabba.Leiðbeinandi: Ragnheiður Ásta Valgeirsdóttir Skátapepp fjallamamma og Hulda María Valgeirsdóttir fyrrum Catering Manager í Kandersteg

     

  14. Breaking leadership. Not like we’ve been told.  (Inngangur)
    Spennandi leiðtogaþjálfun með nýrri nálgun fyrir foringja á öllum aldri.  Brjótum niður staðalímyndir um foringjahlutverkið, hvernig hefur það áhrif á okkur dag frá degi og hvernig tengist það skátastarfi.  Fyrri hluti.Leiðbeinandi: Javier Paniagua Petisco

     

  15. Breaking leadership. Not like we’ve been told.
    Seinni hluti. Nauðsynlegt er að taka þátt í inngangi til að klára seinni hlutann.Leiðbeinandi: Javier Paniagua Petisco

     

  16. Viðbrögð við áföllum í skátastarfi
    Hvað gerum við þegar við stöndum frammi fyrir því að eitthvað erfitt og alvarlegt hefur gerst á skátafundi, í útilegu eða hjá einhverjum í félaginu ?  Hvert hringjum við ? Hvaða aðstoð er í boði? Þarf að tala við fjölmiðla ?  Getur félagið undirbúið sig fyrir áföll sem eiga enn eftir að ske?Leiðbeinandi: Harpa Ósk Valgeirsdóttir, stjórn BÍS

Klst

Min

Sek

Lykilupplýsingar

Byrjar:
08/01/2021 @ 19:30
Endar:
10/01/2021 @ 16:00
Kostnaður:
3500kr
Aldurshópar:
Róverskátar, Eldri skátar, Rekkaskátar

Staðsetning

Á netinu

Skipuleggjandi

Bandalag íslenskra skáta
Sími:
550-9800
Netfang:
skatarnir@skatarnir.is
Vefsíða:
View Skipuleggjandi Website