Views Navigation

Viðburður Views Navigation

Today

FELLDUR NIÐUR ! -Hringborð Róverskáta – Haust 2023

Skátamiðstöðin Hraunbær 123, Reykjavík, Reykjavík, Iceland

Hringborðin eru vettvangur fyrir sjálfboðaliða um land allt í samskonar hlutverkum að kynnast innbyrðis, ræða sín á milli þær áskoranir sem þau mæta í sínu starfi og deila á milli sín lausnum og góðum aðferðum. Fyrir hver er hringborðið: Viðburðurinn […]

Afmæli skátastarfs á Íslandi

Skátarnir á Íslandi fagna 111 ára afmæli þann 2. nóvember, en þann dag árið 1912 var fyrsta skátafélagið stofnað, Skátafélag Reykjavíkur ,,Í Fjósinu" bak við Menntaskólann í Reykjavík. Í fyrra var haldin hátíðarkvöldvaka í samstarfi við Skátasamband Reykjavíkur í Ráðhúsi […]

Frítt

Gilwell 2023 – 3. hluti

Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni, Grafningsvegur efri, Selfoss, Iceland

Síðasti hluti Gilwell leiðtogaþjálfunarinnar 2023 verður haldinn á Úlfljótsvatni helgina 4.- 5. nóvember! Gilwell er tilvalið fyrir skáta, 20 ára og eldri, að upplifa 10 daga skátaævintýri sem inniheldur leiðtogaþjálfun og uppbyggingu einstaklingsins. Á Gilwell fá þátttakendur að efla og öðlast […]

120000kr

Fálkaskátadagurinn 2023

Skátafélagið Vogabúar Logafold 106, Reykjavík, Iceland

Fálkaskátadagurinn er árlegur viðburður sem haldinn er fyrstu helgina í nóvember. Skátafélög skiptast á að halda daginn þar sem þau bjóða fálkaskátum landsins í heimsókn í sitt hverfi/bæjarfélag þar sem fálkarnir taka þátt í dagskrá og gleðjast síðan saman á […]

Frítt

Fjölmenningarfræðsla Mannflórunnar

Skátafélagið Kópar Digranesvegur 79, Kópavogur, Iceland

Miðvikudaginn 8.nóvember kemur Chanel Björk Sturludóttir stofnandi Mannflórunnar til okkar og heldur fræðslu um fjölmenningu. Fræðslan er fyrir allt starfsfólk og sjálfboðaliða skátanna. Fræðslan byggist á innleggi frá Chanel en einnig verður gefið rými fyrir umræður og spurningar að því […]

Frítt

FálkaKraftur

FálkaKraftur er námskeið fyrir fálkaskáta á vegum Leiðbeinendasveitarinnar þar sem lögð er áhersla á að þjálfa fálkaskáta í flokkastarfi,  plana-gera-meta (PGM) og samvinnu. Fyrirkomulag námskeiðanna er þannig að skátafélögin óska eftir því að fá Leiðbeinendasveitina til sín þá daga sem […]

50000kr

Samskipti og siðareglur – Námskeiðaáætlun ÆV

Björgunarsveitin Ársæll Grandagarður 1, Reykjavík, Iceland

Siðareglur eru mikilvægur hlekkur í því að standa vörð um hagsmuni barna og ungmenna sem taka þátt í íþrótta- og æskulýðsstarfi og til að tryggja öryggi þeirra, sem og starfsfólks og sjálfboðaliða í starfinu. Æskulýðsvettvangurinn og þau félagasamtök sem saman […]

Frítt

Flóttarými Róverskáta

Skátaheimili Garðbúa Hólmgarður 34, Reykjavík

Þriðjudaginn 21.nóvember klukkan 19:00 verður flóttarými Róverskáta í Garðbúaheimilinu. Öllum Róverskátum og eldri er boðið að koma og spreyta sig á glænýju flóttarými í skátaanda. Minni þrautir, spil og veitingar verða í boði meðan hóparnir skiptast á að leysa flóttarýmið. […]

Frítt

Jólaljósaslóði á Úlfljótsvatn

Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni, Grafningsvegur efri, Selfoss, Iceland

Við bjóðum ykkur velkomin á Úlfljótsvatn sunnudaginn 17. desember til að fagna aðdraganda jóla, eiga góða og huggulega stund með fjölskyldu, vinum eða skátum, öll eru velkomin. Jólaskógurinn á Úlfljótsvatni geymir lítil ævintýri fyrir unga sem aldna, þar sem við […]

Neisti 2024

Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni, Grafningsvegur efri, Selfoss, Iceland

Neisti er námskeið fyrir skáta 16 ára og eldri til að efla fjölbreytta færni í skátastarfi. DAGSKRÁ Dagskráin miðar að því að dýpka þekkingu og færni skátaforingja, auka sjálfstraust í ferðum með skátasveit eða aðra hópa skátastarfs, kveikja á skátagaldrinum […]

19500kr