Hleð Viðburðir
  • Þessi event er liðinn

Neisti 2024

Um viðburðinn:

Neisti er námskeið fyrir skáta 16 ára og eldri til að efla fjölbreytta færni í skátastarfi.

DAGSKRÁ

Dagskráin miðar að því að dýpka þekkingu og færni skátaforingja, auka sjálfstraust í ferðum með skátasveit eða aðra hópa skátastarfs, kveikja á skátagaldrinum og auka ævintýri í skátastarfi. Þannig er Neisti frábært tækifæri til persónulegra framfara fyrir alla skáta óháð aldri, hlutverki og fyrri reynslu.

Smiðjur eru valdar inn á Neista hverju sinni út frá ákalli sjálfboðaliða eftir þjálfun, ef þú hefur hugmynd að sniðugri smiðju fyrir Neista máttu senda hana á katrin@skatarnir.is

VERÐ OG SKRÁNING

Námskeiðsgjald er 19.500 krónur og innifalið er matur, dagskrá og gisting. Þátttakendur þurfa sjálf að komast á Úlfljótsvatn.

Skráningu lýkur 28. desember!

Skráning er eftir skátafélögum og á sett á 0 krónur þar sem mörg félög greiða fyrir sína þátttakendur og hvetjum við félög að nýta fræðslustyrk sinn hjá BÍS.

Þau sem borga sjálf eru beðin um að haka líka við ‘borga sjálf’ valmöguleikann og áskilur Skátamiðstöðin sér rétt á að setja skáta í greiðsluferli sem skrá sig á 0 krónum en félög hyggjast ekki greiða fyrir.

SKILMÁLAR

​Með því að skrá skáta á Neista samþykkir þú eftirfarandi skilmála:

  1. Þátttakendur sem skrá sig á 0 krónur skuldbinda sig til að greiða fullt gjald ef í ljós kemur að félag hyggst ekki greiða fyrir þau.
  2.  Staðfestingargjaldið, 10% af námskeiðsgjaldi og er það óafturkræft.
  3. Þátttakendur eru ekki sérstaklega slysatryggðir, ábyrgðartryggðir eða vátryggðir að öðru leyti af Bandalag íslenskra skáta (BÍS) í skátastarfi, bent er á að þessar tryggingar eru oft hluti af heimilis- og fjölskyldutryggingum og öðrum almannatryggingum forráðafólks.
  4. Meðferð persónugreinanlegra upplýsinga sem skráðar eru vegna þátttöku er í samræmi við samþykkta persónuverndarstefnu BÍS sem finna má hér (https://skatarnir.is/personuverndarstefna/).
  5. Bandalag íslenskra skáta áskilur sér rétt til að halda eftir hluta af gjaldi þátttakandi greiðir sem hér segir:
    Ef hætt er við þátttöku 1 mánuði fyrir viðburð er staðfestingargjaldi haldið eftir.
    Ef skátinn hættir við þátttöku 3 vikum fyrir viðburð, er 50% af gjaldi haldið eftir.
    Ef skátinn hættir við þátttöku 14 dögum fyrir viðburð, er 75% af gjaldi haldið eftir.
    Ef skátinn hættir við þátttöku þegar skemmra er til viðburðar en sem nemur 14 dögum verður endurgreiðsla engin.
  6. BÍS eða umsjónaraðili á þess vegum getur þurft að aflýsa viðburðum og mótum vegna gildra og óviðráðanlegra aðstæðna s.s. vegna náttúruhamfara, hryðjuverka, stríðs, heimsfaraldra o.fl. Við þessar aðstæður áskilur BÍS sér rétt til þess að endurgreiða ekki mótsgjaldið, þótt ávallt sé leitast eftir að hámarka endurgreiðslu til þátttakenda.​

Auk ofangreindra skilmála gilda almennir skilmálar BÍS, sem má lesa hér.

 

 

Staðsetning viðburðar á korti

Klst

Min

Sek

Lykilupplýsingar

Byrjar:
12. janúar @ 19:30
Endar:
14. janúar @ 16:00
Kostnaður:
19500kr
Aldurshópar:
Rekkaskátar, Róverskátar, Eldri skátar

Skipuleggjandi

Bandalag íslenskra skáta
Sími:
550-9800
Netfang:
skatarnir@skatarnir.is
Vefsíða:
View Skipuleggjandi Website

Staðsetning

Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni
Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni
Grafningsvegur efri, Selfoss 801 Iceland
+ Google Map
Sími:
482-2674
Vefsíða:
View Staðsetning Website