1. Viðburðir
  2. Rekkaskátar

Views Navigation

Viðburður Views Navigation

Today

Vormót Hraunbúa 2024

Hamranes við Hvaleyrarvatn

Skráningafrestur til 17.maí

Vormót Hraunbúa 2024 verður haldið Hvítasunnuhelgina 17.- 20. maí. Skráningin fer fram á Abler síðu Hraunbúa : https://www.sportabler.com/shop/hraunbuar

12000kr.

Skyndihjálparnámskeið – dagur 1

Skátamiðstöðin Hraunbær 123, Reykjavík, Reykjavík, Iceland

Skráningafrestur til 20. maí

Skyndihjálparnámskeið í umsjón hinnar þaulreyndu Laufeyjar Elísabetar Gissurardóttur sem hefur kennt skyndihjálp í þrjá áratugi, námskeiðið er yfir tvo daga og samanstendur af 12 kennslustundum um ólík atriði í skyndihjálp. Í lok námskeiðs fá þau sem ljúka því skyndihjálparskírteini sem nálgast má rafrænt á vef rauða krossins. Þau sem hafa áður sótt námskeiðið og sækjast eingöngu eftir upprifjun mæta aðeins fyrri daginn og fá þannig skyndihjálparskírteini sín endurnýjuð.

17900kr

Skyndihjálparnámskeið – dagur 2

Forsetamerkisráðgjöf

Skátamiðstöðin Hraunbær 123, Reykjavík, Reykjavík, Iceland

Mánudagskvöldið 27. maí kl 20:00 geta rekkaskátar sem eru lögð af stað á vegferð að forsetamerkinu fengið ráðgjöf varðandi vinnuna að forsetamerkinu. Þangað geta bæði lengra og styttra komið með vegferðina mætt og fengið aðstoð við að átta sig á […]

Frítt

Rúllukúlu skátastríð

Keiluhöllin Fossaleynir 1, Reykjavík

Ungmennaráð ætlar að halda keilumót fyrir drótt, rekka- og róverskáta. Viðburðurinn er haldin þriðjudaginn 11. júní kl. 19 í Keiluhöllinni Egilshöll. Mæting er 10 mínútum fyrir svo hægt sé að byrja tímanlega. Þátttökuverðið er 5.000 kr, og er innifalið pizzusneiðar […]

5000kr

Landsmót 2024

Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni Útilífsmiðstöð skáta á Úlfljótsvatni, Grafningsvegur efri, Selfoss, Iceland

Landsmót skáta snýr aftur Eftir nokkur ár er loksins komið að því að við sameinumst aftur á skátamóti, hittum vini og fjölskyldu og eignumst nýja skátavini á Landsmóti skáta á Úlfljótsvatni vikuna 12.-19. júlí 2024. Hægt er að sjá frekari […]

83000kr

Roverway 2024

Stavanger , Norway

Skráningafresti lokið
Roverway er einn af vinsælustu viðburðum fyrir rekka- og róverskáta og taka um 5000 þátttakendur þátt hverju sinni. Þetta er tilvalið tækifæri til að eignast nýja skátavini eða jafnvel endurnýja kynnin við skáta frá Jamboree eða öðrum alþjóðlegum mótum. Roverway verður haldið í Stavanger, Noregi, dagana 22. júlí – 1. ágúst 2024.

KVEIKJA 2024 – STJÓRNARMEÐLIMIR

Skátamiðstöðin Hraunbær 123, Reykjavík, Reykjavík, Iceland

Viðburðurinn á að kveikja neista hjá okkur fyrir komandi starfsár, skapa rými fyrir umræður um hlutverk okkar og annað sem að gagni kemur í vetur. Fræðsla verður um stuðning sem BÍS veitir, námskeið, stuðningsefni og viðburði sem standa skátafélögum til boða.

4500kr