AÐ STOFNA SKÁTAFÉLAG


Hefur þú áhuga á að stofna skátafélag í þínu nærumhverfi? Skátastarf er gefandi, bæði fyrir sjálfboðaliða og unga skáta, og stuðlar að valdeflingu ungmenna, alþjóðlegu bræðralagi og bættum heimi.


HVERNIG Á AÐ STOFNA SKÁTAFÉLAG?

Sagt er að ein af hverjum sjö manneskjum í heiminum séu eða hafi á einhverjum tímapunkti verið skáti. Á Íslandi eru 27 skátafélög staðsett á víð og dreif um landið og við þurfum fleiri til að ná til allra!

Hér eru fimm atriði sem gott er að hafa í huga þegar skátafélög eru stofnuð. Best er að byrja á því að hafa samband við Skátamiðstöðina og spjalla við erindreka Bandalags íslenskra skáta (Bís) sem eru reiðubúin til að aðstoða þig í ferlinu.


1. HVAÐ ÞARF ÉG?

Sjálfboðaliða: Skátahreyfingin á Íslandi og um allan heim reiðir sig á krafta sjálfboðaliða til að takast á við störf á borð við foringja, viðburðarhald, stjórnarsetu o.fl.

Þátttakendur: Erindrekar geta aðstoðað við að kynna skátastarf í þínu nærumhverfi til að vekja áhuga á skátastarfi.

Aðstöðu: Ef þú ert ekki með aðstöðu þá er alltaf hægt að nýta náttúruna til að byrja með. Erindrekar geta aðstoðað við að finna aðstöðu í þínu nærumhverfi fyrir starfið.


2. SKYLDUR SKÁTAFÉLAGA

Skátafélög þurfa að fylgja lögum og grunngildum Bís, æskulýðslögum og öðrum landslögum sem snerta starfsemi þeirra.

Í því felst meðal annars að:

  • Skátafélög innan Bís er skylt að setja sér lög
  • Allir sjálfboðaliðar þurfa að skila inn undirritaðri heimilid til Bís til að kanna sakaskrá allra félaga 18 ára og eldri
  • Sækja námskeiðið Verndum þau


3. SKRIFRÆÐI

Skátafélag þarf að sækja um:

  • Kennitölu
  • Bankareikning
  • Aðild að Bandalagi íslenskra skáta (Bís)

Hægt er að sækja í Styrktarsjóð skáta um stofnstyrk til að auðvelda byrjun skátastarfsins.

Aðstoð við að fá þessi gögn og sækja um styrki fæst hjá erindrekum Bís.


4. ÞJÁLFUN OG STUÐNINGUR

  • Námskeið og þjálfanir:

Verndum þau
Allir sjálfboðaliðar þurfa að sækja námskeiðið Verndum þau þar sem mikilvægt er fyrir þau sem starfa með börnum og ungmennum að vera meðvituð um skyldur sínar og ábyrgð, að geta lesið í vísbendingar um að vanræksla eða ofbeldi, hvort sem það er andlegt, líkamlegt eða kynferðislegt, eigi sér stað og vita hvernig bregðast á við ef slík mál koma upp.

Gilwell leiðtogaþjálfun
Í Gilwell-leiðtogaþjálfun Bís fá fullorðnir sjálfboðaliðar innsýn í hlutverk fullorðinna í skátastarfi og öðlast þekkingu og færni til að leiða starfið og þar með leggja sitt af mörkum til betra samfélags. Hún gefur þátttakendum auk þess tækifæri til að efla leiðtogahæfni sína á sviðum sem nýtast á öllum stöðum lífsins.

Skyndihjálparnámskeið
Skyndihjálparnámskeið standa til boða einu sinni til tvisvar á ári.

Fræðslukvöld
Fræðslukvöld eru auglýst á heimasíðu skátanna þegar þau standa til boða. Reynt er að bjóða upp á fjölbreytta fræðslu til að bæta ofan á þekkingu og vitneskju skáta.

  • Almenn þjónusta erindreka
  • Samstarf við önnur félög


5. DAGSKRÁ

Erindreki kemur og aðstoðar við fyrsta dagskrárhringinn þar sem farið verður yfir grunnhugtök eins og dagskrárhringur, sveit, skátalögin og skátaheitið.

Dagskrárvefurinn okkar sem verður birtur fljótlega inniheldur allskonar skemmtilegar hugmyndir þar sem hægt er að sækja sér innblástur í dagskrárgerð.


róver skátar ljósmyndari: nanna
vetrarmót 2020 róverskáti ljósmyndari: nanna

Hægt er að hafa samband við Erindreka BÍS í síma Skátamiðstöðvarinnar 550 9800.
Hlökkum til að heyra frá þér!