Hleð Viðburðir
  • Þessi event er liðinn

Ungt fólk og lýðræði – að jörðu skaltu aftur verða

Um viðburðinn:

Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði fer fram dagana 22. – 24. september 2023 að Reykjum í Hrútafirði. Yfirskrift ráðstefnunnar er, að jörðu skaltu aftur verða sem vísar til umhverfis- og loftlagsmála.
Markmið ráðstefnunnar er að efla umhverfisvitund ungs fólks og skapa vettvang til þess að koma saman og ræða hvernig við sem einstaklingar getum lagt okkar að mörkum til þess að bæta umhverfið okkar og draga úr áhrifum loftlagsbreytinga. Gleði og þátttaka eru einnig markmið ráðstefnunnar og að veita þátttakendum tækifæri til þess að kynnast nýju fólki og þjálfun til þess að hafa aukin áhrif á sitt eigið líf og nær samfélag.

Dagskráin verður með fjölbreyttu sniði. Hellings hópefli og samvera. Kynningar með mögnuðum fróðleik. Uppörvandi og hvetjandi málstofur, samtal við ráðamenn, kvöldvökur og önnur skemmtilegheit.

TAKMARKAÐUR FJÖLDI

Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 80 þátttakendur svo það borgar sig að bíða ekki of lengi með skráningu. Fullorðinn einstaklingur þarf að fylgja þátttakendum yngri en 18 ára. Þátttökugjald er 15.000 kr. fyrir hvern þátttakanda. Innifalið í gjaldinu eru ferðir, uppihald og ráðstefnugögn. Rúta fer frá þjónustumiðstöð UMFÍ í Reykjavík á föstudeginum og til baka á sunnudeginum sem þátttakendur eru hvattir til þess að nýta sér. Fyrir þau sem ekki geta nýtt sér rútuna er hægt að sækja um styrk fyrir ferðakostnaði til UMFÍ. Skila þarf inn kvittunum á sérstöku eyðublaði sem sent verður út eftir viðburðinn.

Athygli er vakin á því að viðburðurinn er með öllu vímuefnalaus, á það einnig við um rafsígarettur og nikótínpúða.

SKRÁNING

Ekki þarf að vera í ungmennaráði eða ákveðnu félagi til þess að koma. Ráðstefnan er fyrir öll ungmenni á aldrinum 16 – 25 ára. Fullorðinn einstaklingur þarf að fylgja ungmennum undir 18 ára aldri.

DAGSKRÁ

Dagskrá er enn í vinnslu. En fyrir forvitna er hægt að smella á hlekkinn hér fyrir neðan og sjá drög.

Staðsetning viðburðar á korti

Klst

Min

Sek

Lykilupplýsingar

Byrjar:
22/09/2023
Endar:
24/09/2023
Kostnaður:
15000kr
Aldurshópar:
Rekkaskátar, Róverskátar
Vefsíða:
https://www.umfi.is/vidburdir/ungt-folk-og-lydraedi/ungt-folk-og-lydraedi-2023/

Skipuleggjandi

Ungmennaráð UMFÍ

Staðsetning

Reykir
Reykir
Hrútafirði, Iceland
+ Google Map